Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

185. fundur 18. mars 2011 kl. 10:30 - 11:06 Eyrarlandsstofa í Lystigarði
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Sigríður María Hammer
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Varpholt - framtíðaráform

Málsnúmer 2009110053Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá skólanefnd dags. 10. mars 2011 þess efnis að nefndin verði leyst undan leiguskyldum af Varpholti, þar sem engin not séu fyrir húsnæðið undir skólastarf.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu og koma með tillögur fyrir næsta fund.

2.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Lagðir fram verksamningar dags. 16. mars 2011 við eftirtalda verktaka um vinnu við endurbætur á stúkunni í framhaldi af iðngreinaútboðinu 28. febrúar 2011:
Málning - Björn málari ehf
Loftræsting - Blikkrás ehf
Pípulögn - Bútur ehf
Gólfefni og veggklæðningar - Gólflausnir Malland ehf
Múrverk - Ólafur Björnsson
Rafmagn - Rafmenn ehf
Trésmíði - Spor 33 ehf

Oddur Helgi Halldórsson L-lista vék af fundi undir þessum lið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samningana.

3.Hlíðarfjall - nestishús

Málsnúmer 2011030115Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar gjafaafsal dags. 11. mars 2011 vegna nestishúss í Hlíðarfjalli sem Samherji hf gefur Akureyrarbæ.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar höfðinglega gjöf.

Fundi slitið - kl. 11:06.