Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

283. fundur 22. júlí 2016 kl. 09:30 - 10:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista tilkynnti forföll. Varamaður mætti ekki í hennar stað.

1.Mýrarvegur 113 502 - kaup á leiguíbúð

Málsnúmer 2016070036Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar kaupsamningur vegna íbúðar 502 við Mýrarveg 113.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupsamninginn.

2.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun á dúk í laugarkörum

Málsnúmer 2016060053Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður á opnun tilboða vegna endurnýjunar á dúk í laugarkari.

Tvö tilboð bárust í verkið:



Seglagerðin Ægir kr. 8.600.500 72%

Fagráð ehf kr. 17.959.800 150%



Kostnaðaráætlun kr. 12.000.000 100%
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Seglagerðina Ægi á grundvelli tilboðs.

3.Önnur mál - stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 2016

Málsnúmer 2016010047Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir að formaður velferðarráðs og formaður bæjarráðs komi á næsta fund stjórnarinnar og fari yfir framtíðaráform með raðhúsaíbúðirnar við Hlíð.

Fundi slitið - kl. 10:15.