Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

275. fundur 04. mars 2016 kl. 08:15 - 12:00 Þórunnarstræti 99, kjallari
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista boðaði forföll og Eiríkur Jónsson mætti í hennar stað.

1.Hljóðvist í íþróttamannvirkjum

Málsnúmer 2015100029Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður úr hljóðvistarmælingum Vinnueftirlitsins sem gerðar voru í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar í nóvember 2015.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar lýsir ánægju sinni með almennt góða útkomu á hljóðvist í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar og felur Fasteignum Akureyrarbæjar að kostnaðargreina úrbætur á hljóðvist í íþróttahúsi Glerárskóla.

2.Hljóðvist í leikskólum - tilraunaverkefni

Málsnúmer 2015040233Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður úr hljóðvistarmælingum Vinnueftirlitsins sem gerðar voru í leikskólum Akureyrarbæjar í janúar 2016.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar lýsir ánægju sinni með góða útkomu á hljóðvist í þeim þremur leikskólum Akureyrarbæjar sem mældir voru.

3.Fasteignir Akureyrarbæjar - útboð á úttektum brunaviðvörunarkerfa

Málsnúmer 2016030012Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður í verðfyrirspurn vegna úttekta á brunaviðvörunarkerfum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Nortek ehf.

4.Naustaskóli - íþróttahús

Málsnúmer 2015020029Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 3. mars 2016 um niðurstöðu verðkönnunar vegna kaupa á búnaði fyrir íþróttahúsið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur Fasteignum Akureyrarbæjar að klára innkaupin á búnaðinum í samráði við notendur.

5.Sala eigna - framtíðarsýn

Málsnúmer 2014010167Vakta málsnúmer

Rætt um framtíðarsýn í sölumöguleikum fasteigna í eigu Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu og setja jafnframt tvær lausar kennslustofur í söluferli.

6.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Rætt um vígslu og formlega afhendingu húsnæðisins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu í samstarfi við samfélags- og mannréttindadeild og Skátafélagið Klakk og stefna að afhendingu húsnæðisins í byrjun apríl.

7.Verkfundargerðir FA 2016

Málsnúmer 2016010153Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Boginn endurnýjun gervigrass - 2. fundur verkefnisliðs dagsettur 18. febrúar 2016.

Listasafn endurbætur - 10. fundur verkefnisliðs dagsettur 4. febrúar 2016.

Naustaskóli íþróttahús: 13. og 14. verkfundur dagsettir 5. og 19. febrúar 2016.

Skautahöll endurbætur á svelli: 13. fundur verkefnisliðs dagsettur 29. febrúar 2016.

8.Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - skoðunarferð

Málsnúmer 2016020259Vakta málsnúmer

Farið í skoðunarferð í Naustaskóla, Rósenborg og Listasafnið.

Fundi slitið - kl. 12:00.