Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

274. fundur 05. febrúar 2016 kl. 08:15 - 10:00 Fundarherbergi FAK
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.
Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista boðaði forföll og Eiríkur Jónsson S-lista, mætti í hennar stað.
Jón Orri Guðjónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.

1.Fjárhagsáætlun 2016 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015090007Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjárfestingaráætlun 2016-2019 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2015.

2.Stöðuskýrslur FA 2015

Málsnúmer 2015040077Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 10 fyrir stjórn FA dagsett 4. febrúar 2016.

3.Skautahöllin - nýtt svell

Málsnúmer 2015020134Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður útboðs á jarðvinnu og múrbroti annars vegar og uppbyggingu gólfplötu og svells hins vegar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur í báðum útboðunum.

4.Naustaskóli - íþróttahús

Málsnúmer 2015020029Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett 4. febrúar 2016 um niðurstöður verðkannana vegna kaupa á gólfi, ljósum, lyftu og skiptitjaldi fyrir íþróttahúsið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við eftirtalda aðila:

Íþróttagólf - Altís ehf.

Lyfta - Kone ehf.

Ljós - Rönning, Rafmiðlun, Reykjafell og Smith & Norland.

Skiptitjald - Á.Óskarsson ehf.

5.Verkfundargerðir FA 2016

Málsnúmer 2016010153Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Listasafn endurbætur - 8. og 9. fundur verkefnisliðs dagsettir 17. desember 2015 og 21. janúar 2016.

Naustaskóli íþróttahús: 11. og 12. verkfundur dagsettir 11. desember 2015 og 22. janúar 2016.

Skautahöllin endurnýjun svells: 12. fundur verkefnisliðs dagsettur 3. febrúar 2016.

Boginn - endurnýjun gervigrass: 1. fundur verkefnisliðs dagsettur 4. febrúar 2016.

Fundi slitið - kl. 10:00.