Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

268. fundur 16. október 2015 kl. 08:00 - 11:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenu Þuríðar Karlsdóttur.
Jón Orri Guðjónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.

1.Stöðuskýrslur FA 2015

Málsnúmer 2015040077Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 7 fyrir stjórn FA dagsett 7. október 2015.

2.Hof menningarhús - hraðhleðslustöð

Málsnúmer 2015090013Vakta málsnúmer

Umsókn dagsett 16. júní 2015 frá Norðurorku hf um að setja upp hraðhleðslustöð við Hof menningarhús.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir erindi NO hf um að setja niður eina hraðhleðslustöð við grænu bílastæðin við Hof menningarhús og felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningi við NO hf varðandi málið.

3.Snægil 15 - kauptilboð

Málsnúmer 2015090268Vakta málsnúmer

Lagt fram til samþykktar kauptilboð í Snægil 15-101.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kauptilboðið fyrir sitt leyti og felur framkvæmdastjóra að ganga frá kaupunum.

4.Ályktun stjórnar Heimilis og skóla um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjakurli

Málsnúmer 2015090260Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 25. september 2015 frá stjórn Heimilis og skóla þar sem farið er fram á það við sveitarfélög landsins að gervigrasvellir sem þaktir eru gúmmíkurli úr dekkjum verði endurnýjaðir í ljósi upplýsinga um að dekkjakurl á fótboltavöllum innihaldi krabbameinsvaldandi efni.

5.Hljóðvist í íþróttamannvirkjum

Málsnúmer 2015100029Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk íþróttaráðs um að gerð verði úttekt og mælingar á hljóðvist í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar með tilliti til heilbrigðisviðmiða
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur Fasteignum Akureyrarbæjar að gera úttekt á íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar með tilliti til hljóðvistar.

6.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 1 fyrir framkvæmdirnar dagsett 13. október 2015.

7.Hlíð - endurbætur á Víði- og Furuhlíð

Málsnúmer 2014110024Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 12. október 2015 vegna framkvæmdanna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar málinu til umræðu í velferðarráði.
Þegar hér var komið mætti Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista á fundinn kl. 09:40.

8.Fjárhagsáætlun 2016 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015090007Vakta málsnúmer

Framhald frá síðasta fundi af 1. umræðu vegna viðhaldsáætlunar og nýframkvæmdaáætlunar fyrir árin 2016 til 2018.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárhags- og nýframkvæmdaáætlun fyrir árið 2016 fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
Jón Orri Guðjónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

9.Húsnæðismál á Akureyri

Málsnúmer 2015100079Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu fasteignamarkaðarins á Akureyri með tilliti til biðlista eftir íbúðum hjá Akureyrarbæ.

10.Verkfundargerðir FA 2015

Málsnúmer 2015010093Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Listasafn endurbætur: 4. fundur verkefnisliðs dagsettur 1. október 2015.
NSK-ÍÞH: 7. verkfundur dagsettur 25. september 2015.
Sundlaug Akureyrar endurnýjun rennibrauta: 10. fundur verkefnisliðs dagsettur 5. október 2015.
Þ99 kjallari: 8. og 9. verkfundur dagsettir 21. september og 5. október 2015.

Fundi slitið - kl. 11:05.