Stjórn Akureyrarstofu

181. fundur 12. febrúar 2015 kl. 16:15 - 17:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Skúli Gautason framkvæmdastjóri akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Skúli Gautason framkvæmdastjóri
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista boðaði forföll.

1.Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2010090020Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu skal skipa tvo fulltrúa í stjórn Iðnaðarsafnsins á Akureyri
Stjórn Akureyrarstofu tilnefnir Helgu Mjöll Oddsdóttur og Vilhjálm G. Kristjánsson í stjórn Iðnaðarsafnsins á Akureyri.

2.Listasumar 2015

Málsnúmer 2014080143Vakta málsnúmer

Listasumar verður endurvakið sumarið 2015. Rekstur Listasumars verður aðskilinn frá rekstri annarra stofnana. Stjórn Akureyrarstofu þarf að tilnefna umsjónarmann Listasumars 2015.
Stjórn Akureyrarstofu felur safnstjóra Listasafnsins á Akureyri að sjá um framkvæmd Listasumars á Akureyri og ráða umsjónarmann til verkefnisins.

3.17. júní hátíðarhöld

Málsnúmer 2015020072Vakta málsnúmer

Undanfarin ár hefur verið samið við Skátana um að taka að sér þann hluta hátíðarhaldanna 17. júní sem fer fram í miðbænum yfir daginn og um kvöldið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ganga til viðræðna við Skátana um framkvæmd hátíðarhalda 17. júní með svipuðum hætti og undanfarin ár.

4.Iceland Winter Games - Íslensku vetrarleikarnir - beiðni um styrktarsamning

Málsnúmer 2014050195Vakta málsnúmer

Viðburðastofa Norðurlands sækir um 600.000 kr. styrk vegna Iceland Winter Games. Einnig er sótt um að þátttakendur í mótinu fái ókeypis lyftukort í Hlíðarfjall.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita Viðburðastofu Norðurlands 600.000 kr. styrk vegna verkefnisins árið 2015. Þeim hluta umsóknarinnar er snýr að lyftukortum er vísað til íþróttaráðs.

Fundi slitið - kl. 17:00.