Stjórn Akureyrarstofu

159. fundur 27. mars 2014 kl. 16:00 - 17:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Sigmundur Ófeigsson
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Jóhann Jónsson
  • Matthías Rögnvaldsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Verkefnisstjórn um mótun atvinnustefnu

Málsnúmer 2011110167Vakta málsnúmer

Atvinnustefna Akureyrar tekin til lokaafgreiðslu frá stjórninni. Farið var yfir þær hugmyndir og tillögur sem fram komu á lokastigum vinnunnar þar sem fulltrúar allra stjórnmálaflokka í bæjarstjórn fóru sérstaklega yfir hana með verkefnisstjóra atvinnumála á Akureyrarstofu.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi drög.

 

Jóhann Jónsson fulltrúi S-lista í stjórninni óskar bókað: Ég fagna þeirri vinnu sem hér hefur verið unnin og á mörgum þáttum hefur verið tekið m.a. hlutverki sveitarfélagins. Reynt hefur verið að ná sem mestri sátt meðal stjórnmálaflokka og ber að þakka fyrir það. Lítill tími hefur hins vegar gefist til að fara yfir breytingarnar sem hér eru til afgreiðslu og því sit ég hjá við þessa afgreiðslu.

2.Gásakaupstaður ses - aðalfundur 2014

Málsnúmer 2014030214Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga formanns um að Kristín Sóley Björnsdóttir verði aðalmaður fyrir Akureyrarkaupstað í stjórn Gásakaupstaðar ses og Bergþór Erlingsson verði varamaður.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillöguna.

3.Iðnaðarsafnið - stofnskrá 2014

Málsnúmer 2014030307Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar endurskoðuð stofnskrá fyrir Iðnaðarsafnið á Akureyri.

 

Fundi slitið - kl. 17:00.