Stjórn Akureyrarstofu

92. fundur 10. mars 2011 kl. 16:00 - 18:10 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál

Málsnúmer 2010060120Vakta málsnúmer

Áfram haldið umræðu um skýrslu starfshópsins sem kynnt var á síðasta fundi stjórnarinnar. Rætt var um mögulega fjölgun fulltrúa í stjórn Akureyrarstofu og mótun atvinnustefnu sem fram undan er.

Umræðu frestað til næsta fundar.

2.Upplýsingamiðstöð ferðamanna - rekstur 2011

Málsnúmer 2011030088Vakta málsnúmer

Rætt um rekstur og þjónustu Upplýsingamiðstöðvarinnar en hún er nú sem kunnugt er flutt í menningarhúsið Hof. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og undirbúningi fyrir sumarvertíðina, en þá má búast við að um 50-60 þúsund manns leggi leið sína í miðstöðina á 3ja mánaða tímabili.
Jafnframt lagður fram til kynningar samningur við Ferðamálastofu um stuðning við starfsemina.

3.Akureyrarstofa - rekstraryfirlit 2010

Málsnúmer 2010080057Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstraryfirlit fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2010. Samkvæmt yfirlitinu er heildarniðurstaða rekstursins um 2% umfram áætlun fyrir árið sem skýrist að hluta vegna skekkju í áætlunum og að hluta vegna þess að útgjöld eru umfram það sem áætlun gerir ráð fyrir.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að fara sérstaklega yfir áætlanagerð fyrir hátíðahöld í bænum á nýju ári.

4.Flugsafn Íslands - styrkbeiðni 2010

Málsnúmer 2010110050Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags 4. mars 2011 frá Svanbirni Sigurðssyni f.h. Flugsafns Íslands þar sem óskað er eftir stuðningi Akureyrarbæjar við rekstur safnsins með sambærilegum hætti og önnur söfn í bænum.

Misjafnt er með hvaða hætti Akureyrarbær kemur að stuðningi við rekstur safna á Akureyri, enda er hann í sumum tilfellum eigandi eða stofnaðili en í öðrum tilfellum ótengdur viðkomandi safni. Akureyrarbær lagði Flugsafninu til húsnæðisstyrk með 45,5 mkr. framlagi til nýbyggingar safnsins sem kemur í stað árlegs húnæðisstyrks sem sum söfn í bænum njóta. Auk þess hefur Akureyrarbær stutt við rekstur safnsins með lægri árlegum fjárhæðum og er reiðubúinn til þess áfram.

Stjórnin telur uppbyggingu og tilvist Flugsafns Íslands mjög jákvæða og mikilvæga fyrir ferðaþjónustu og menningarlíf í bænum, en ítrekar þá skoðun sína að ríkisvaldið eigi að vera megin bakhjarl safns sem skráir flugsögu Íslands sem heild.

Stjórn Akureyrarstofu ítrekar fyrri ákvörðun um að halda áfram árlegum stuðningi við safnið með sama hætti og verið hefur.

5.Önnur mál

Málsnúmer 2011020096Vakta málsnúmer

1) Helena Karlsdóttir S-lista lagði fram þá hugmynd að Akureyrarstofa stæði fyrir kynningarfundi um málefni ESB í tengslum við aðildarviðræður.

2) Helena Karlsdóttir S-lista óskaði eftir því að menningarfulltrúi Eyþings yrði fenginn á fund stjórnar til að kynna starfsemi Menningarráðs Eyþings.

1) Stjórnin felur framkvæmdastjóra að skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni.

2) Samþykkt að óska eftir því að fá kynningu á Menningarráði Eyþings.

Fundi slitið - kl. 18:10.