Stjórn Akureyrarstofu

80. fundur 16. september 2010 kl. 16:00 - 18:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Sigmundur Ófeigsson
  • Jón Hjaltason
  • Sigrún Stefánsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2010090020Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu skipar 2 fulltrúa í stjórn Iðnaðarsafnsins og 2 til vara.

Stjórnin samþykkir að skipa Ágúst Hilmarsson og Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur sem aðalmenn í stjórnina og Hjalta Ómar Ágústsson og Sigrúnu Óladóttur til vara.

2.Minjasafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2010090018Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu skipar 3 fulltrúa í stjórn Minjasafnsins og 3 til vara.

Stjórnin samþykkir að skipa Bergvin Oddsson, Hlín Bolladóttir og Sigurbjörgu Árnadóttir sem aðalmenn í stjórn Minjasafnsins og Pétur Halldórsson, Guðrúnu Birgisdóttur og Sigurð Guðmundsson til vara.

3.Vanadís - Fornar sagnir og spár - styrkumsókn

Málsnúmer 2010070069Vakta málsnúmer

Erindi dags. 30. ágúst 2010 frá Valgerði H. Bjarnadóttur þar sem hún óskar eftir styrk til verkefnisins Fornar sagnir og spár.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.

4.Atvinnuátaksverkefni Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar

Málsnúmer 2009020174Vakta málsnúmer

Rætt um framhald atvinnuátaksverkefna á árinu 2010 í kjölfar þess að bæjarráð ákvað að auka fjárheimildir til verkefnanna um 10 mkr. Yfirlit um verkefnin lagt fram til kynningar.

5.Fjárhagsáætlun 2011 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2010100024Vakta málsnúmer

Farið yfir ramma og vinnulag við gerð áætlunarinnar. Fyrir liggur að hagræðingarkrafa í menningarmálum er 25 mkr. fyrir árið 2011.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ræða við forstöðumenn stofnana og fulltrúa þeirra aðila sem fá samningsbundin framlög frá Akureyrarbæ um þá hagræðingarvinnu sem framundan er.

Fundi slitið - kl. 18:00.