Stjórn Akureyrarstofu

317. fundur 15. apríl 2021 kl. 12:00 - 13:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða við útsenda dagskrá og óskaði eftir að mál nr. 2020040622 - Norðurslóðamiðstöð Íslands yrði tekið út af dagskrá og mál nr. 2021031097 - Útboð á rekstri kaffihúss í Listasafninu verði tekið inn á dagskrá. Var það samþykkt.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Safnastefna Akureyrarbæjar lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fyrirliggjandi drög að Safnastefnu Akureyrarbæjar, með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum, ásamt aðgerðaáætlun, verði lögð fram til kynningar hjá hagaðilum.

2.Menningarsjóður 2021

Málsnúmer 2021031614Vakta málsnúmer

Tillögur að byggingarlistaverðlaunum, húsverndarviðurkenningu, starfslaunum listamanna og heiðursviðurkenningum lagðar fram.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framkomnar tillögur. Afhending verðlaunanna verður á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta þann 22. apríl nk.

3.Laxdalshús - útleiga

Málsnúmer 2015010247Vakta málsnúmer

Bréf dagsett 30. apríl 2021 frá Eyþóri Inga Jónssyni f.h. Hymnodiu-Kammerkórs Akureyrar, þar sem tilkynnt er um að kórinn hyggist ekki óska eftir framlengingu á samningi um leigu á Laxdalshúsi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að auglýsa Laxdalshús til leigu í samræmi við gildandi viðmiðunarreglur.

4.Hugmynd að Rannsóknarstofu handverks

Málsnúmer 2021031443Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Jennýju Karlsdóttur þar sem kynnt er hugmynd að Rannsóknarstofu handverks og þar sem óskað er eftir að fá Laxdalshús undir starfsemina.
Stjórn Akureyrarstofu hyggst leigja út Laxdalshús og bendir forsvarsmönnum Rannsóknarstofu handverks á að sækja um þegar auglýst verður eftir leigjendum.

5.Ársskýrsla samfélagssviðs

Málsnúmer 2020050003Vakta málsnúmer

Ársskýrsla samfélagssviðs fyrir árið 2020 lögð fram til kynningar.

6.Iðnaðarsafnið - ársreikningur 2020

Málsnúmer 2021040525Vakta málsnúmer

Ársreikningur Iðnaðarsafnsins fyrir árið 2020 lagður fram til kynningar.

7.Húsnæðismál AkureyrarAkademíunnar

Málsnúmer 2019040047Vakta málsnúmer

Lögð fram samningsdrög að samkomulagi á milli Akureyrarbæjar og AkureyrarAkademínunnar um leigu aðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi drög.

8.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021

Málsnúmer 2020060900Vakta málsnúmer

Farið yfir starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu og stöðu verkefna eftir fyrstu þrjá mánuði ársins.

9.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2021

Málsnúmer 2021011468Vakta málsnúmer

Fundargerð SSNE nr. 22 lögð fram til kynningar.

10.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir

Málsnúmer 2020040527Vakta málsnúmer

Fundargerðir MN frá 26. janúar og 1. febrúar 2021 lagðar fram til kynningar.

11.Útboð - Rekstur kaffihúss í Listasafninu á Akureyri

Málsnúmer 2021031097Vakta málsnúmer

Greinargerð dómnefndar lögð fram ásamt tillögu að vali.

Niðurstaða dómnefndar er að leggja til við stjórn Akureyrarstofu að gengið verði til samninga við Eyþór Gylfason og Þórunni Eddu Magnúsdóttur á grundvelli innsendrar umsóknar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu dómnefndar.

Fundi slitið - kl. 13:45.