Stjórn Akureyrarstofu

314. fundur 25. febrúar 2021 kl. 12:00 - 14:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá

1.Starfshópur um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi

Málsnúmer 2019040026Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningar gerði grein fyrir vinnu starfshóps um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi á háskólastigi.

2.Samkeppnishæfni Akureyrarbæjar gagnvart öðrum sveitarfélögum á atvinnumarkaði

Málsnúmer 2018110163Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar samantektir á niðurstöðum Fyrirtækjaþings sem Akureyrarstofa og SSNE stóðu fyrir í lok janúar og einnig niðurstöður úr íbúakönnun landshlutanna sem unnin var af Vífli Karlssyni og Helgu Maríu Pétursdóttur.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að vinna áfram að samkeppnisgreiningunni í samvinnu við starfsmenn SSNE. Vinnunni verður lokið fyrir 1. apríl og kemur þá til kynningar hjá stjórninni og öðrum nefndum og ráðum bæjarins.

3.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu fór yfir stöðu mála.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að klára vinnu við safnastefnu fyrir 31. mars nk. Stefnan verður sérstakur kafli í menningarstefnu en endurskoðun hennar skal vera lokið fyrir 1. október.

4.Héraðsskjalasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2020060055Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna skjala frá KEA á Héraðsskjalasafninu.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir áliti bæjarlögmanns á málinu.

5.Súlur Vertical - stuðningur við fjallahlaupið

Málsnúmer 2021010344Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu fór yfir þann kostnað sem felst í stuðningi Akureyrarbæjar við framkvæmd hlaupsins.
Stjórn Akureyrastofu samþykkir stuðning við Súlur Vertical vegna framkvæmda við hlaupið. Annars vegar er um að ræða þjónustustyrk sem felst í vinnuframlagi starfsmanna Akureyrarbæjar að upphæð kr. 341.000 og hins vegar í formi leigu á salernum og greiðslu fyrir akstur samtals að upphæð kr. 360.000. Heildarstyrkur nemur kr. 701.000.

Finnur Dúa Sigurðsson sat hjá.


Finnur Dúa Sigurðsson og Karl L. Hólmgeirsson leggja fram eftirfarandi bókun:

Okkur lýst mjög vel á viðburðinn sem slíkan en hugnast ekki bein fjárframlög í ljósi samdráttar á öllum sviðum Akureyrarbæjar.


6.Samfélagssvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2018110172Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.

7.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir 2020

Málsnúmer 2020040527Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar MN frá 20. október 2020 og 1. desember 2020 lagðar fram til kynningar.

8.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2021

Málsnúmer 2021011468Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar SSNE nr. 20 og 21 lagðar fram til kynningar.

9.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020

Málsnúmer 2020020650Vakta málsnúmer

Fundargerð SSNE nr. 19 lögð fram til kynningar.

10.Fundargerðir MAk

Málsnúmer 2019110308Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar MAk nr. 125, 126 og 127 lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:30.