Stjórn Akureyrarstofu

303. fundur 03. september 2020 kl. 14:00 - 17:25 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Sigríður Ólafsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Sigríður Ólafsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur.

1.Mannréttindastefna 2020-2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifstofustjóri og jafnréttisráðgjafi kynnti nýja mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Bryndísi fyrir greinargóða kynningu.

2.Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni

Málsnúmer 2020020492Vakta málsnúmer

Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni lagður fram til umræðu.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021

Málsnúmer 2020060900Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu á vinnu við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2021.

4.Menningarsjóður 2020

Málsnúmer 2020030481Vakta málsnúmer

Þegar markaðs- og vöruþróunarátak fyrir sumarið 2020 var í undirbúningi var lagt upp með að aukaúthlutun úr Menningarsjóði færi fram nú í haust. Rætt um fyrirkomulag og áherslur hennar. Áætlað er að 5 m.kr. fari til úthlutunarinnar.
Stjórnin felur forstöðumanni Akureyrarstofu að útfæra ramma og viðmið fyrir úthlutunina. Stjórnin leggur áherslu á verkefni sem eru atvinnuskapandi sem og viðburði sem svala þorsta bæjarbúa og gesta eftir því að njóta menningar. Horft verður sérstaklega til lausna í viðburðahaldi sem taka mið af síbreytilegu umhverfi sóttvarna á tímum COVID-19.

5.Markaðsátak á tímum COVID-19

Málsnúmer 2020040169Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu kynnti hugmyndir um áframhaldandi markaðs- og ferðaþjónustuátak fyrir veturinn 2020/2021.
Stjórnin felur starfsfólki Akureyrarstofu að vinna áfram að markaðssátaki fyrir komandi vetur og leiða saman hagsmunaðila í ferðaþjónustu, verslun, menningar- og afþreyingargeira. Farið verði í sameiginlega kynningu á Akureyri sem vetraráfangastað og stuðlað að þróun tilboða og viðburða sem taki mið af ólíkum tímabilum vetrarins, til dæmis í tengslum við jólaverslun, leikhús, skíði og útivist.

6.Markaðssetning á íbúamarkaði - samkeppnisgreining

Málsnúmer 2019010151Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu gerði grein fyrir hugmyndum um áframhaldandi markaðssetningu á íbúamarkaði og vinnu við samkeppnisgreiningu.

7.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020

Málsnúmer 2020020650Vakta málsnúmer

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 11 lögð fram til kynningar.

8.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir 2020

Málsnúmer 2020040527Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar Markaðstofu Norðurlands frá 5. júní og 13. júlí 2020 lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:25.