Stjórn Akureyrarstofu

300. fundur 11. júní 2020 kl. 08:15 - 11:40 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Kristján Blær Sigurðsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Kristján Blær Sigurðsson D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

1.Viðburða- og vöruþróunarsjóður

Málsnúmer 2020050658Vakta málsnúmer

Lagðar fram til samþykktar tillögur úthlutunarnefndar um styrki úr viðburða- og þróunarsjóði. Samtals bárust 72 umsóknir með styrkbeiðnir að upphæð 41.948.453 kr.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur úthlutunarnefndar. Alls hljóta 46 verkefni styrki að upphæð 14.133.000 samtals. Yfirlit yfir verkefnin má sjá í meðfylgjandi fylgiskjali en þau eru af mjög fjölbreyttum toga á sviðum ferðaþjónustu, menningarstarfs og íþrótta og útivistar.

2.Ferðamálafélag Hríseyjar - beiðni um niðurgreiðslu fargjalda í ferjuna í sumar

Málsnúmer 2020050123Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá Ferðamálafélagi Hríseyjar þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær styrki félagið með því að niðurgreiða fjargjöld í Hríseyjarferjuna fyrir allt að einn mánuð í sumar. Erindið var áður á dagskrá stjórnar þann 14. maí sl.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja Ferðamálafélag Hríseyjar um allt að tvær milljónir króna til niðurgreiðslu fargjalda.

3.Iðnaðarsafnið á Akureyri

Málsnúmer 2004050105Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar samningur við Iðnaðarsafnið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlögð drög með þeim breytingum sem rætt var um á fundinum.

4.Akureyrarstofa - skjalastefna og staða skjalamála

Málsnúmer 2020050251Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný skjalastefna Akureyrarbæjar ásamt verklagsreglum. Einnig yfirlit yfir stöðu skjalamála hjá Akureyrarstofu.

5.Barnamenningarsjóður Íslands

Málsnúmer 2020060313Vakta málsnúmer

Kynnt úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands 2020 en tvö verkefni á Akureyri fengu styrki.


Listasafnið á Akureyri fékk styrk að upphæð 1 m.kr. til verkefnisins Allt til enda - listvinnustofur barna sem unnið er í samstarfi Akureyrarstofu, Lilýjar Erlu Adamsdóttur, Ninnu Þórarinsdóttur og Sigríðar Ellu Frímannsdóttur.


Þá fékk verkefnið Úti er ævintýri - læsishvetjandi ratleikur styrk að upphæð 1,8 m.kr.. Íris Hrönn Kristinsdóttir leiðir verkefnið í samstarfi við Bókasafn Háskólans á Akureyri, Miðstöð skólaþróunar við

Háskólann á Akureyri, Amtsbókasafnið á Akureyri, Barnabókasetur, fræðslusvið Akureyrarbæjar, Skógræktarfélag Eyfirðinga og Vinnuskóla Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar eflingu barnamenningar á Íslandi og þeim styrkjum sem umrædd verkefni fengu.

6.Stjórn MN

Málsnúmer 2020060312Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um nýkjörna stjórn Markaðsstofu Norðurlands sem kosin var á aðalfundi þann 26. maí sl.

Fundi slitið - kl. 11:40.