Stjórn Akureyrarstofu

253. fundur 03. maí 2018 kl. 17:00 - 18:30 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Sigfús Karlsson fulltrúi B-lista boðaði forföll sem og varamaður hans.
Eva Dögg Fjölnisdóttir fulltrúi Æ-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að fá að taka mál nr. 2017090124, Íbúakort, inn á dagskrá fundarins. Var það samþykkt.

1.Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings

Málsnúmer 2016040100Vakta málsnúmer

Til umræðu þjónustusamningur við Minjasafnið á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir viðauka að upphæð kr. 7.500.000 sem komi til viðbótar við framlög til safnsins á yfirstandandi ári, til að koma til móts við þróun framlaga til safnsins síðustu ár sem ekki hafa haldist í hendur við verðlagsbreytingar. Jafnframt í framhaldinu verði gengið frá nýjum samningi þar sem tekið verði tillit til verðlagsbreytinga.

2.17. júní hátíðarhöld

Málsnúmer 2015020072Vakta málsnúmer

Erindi frá Skátafélaginu Klakki vegna samnings um umsjón og framkvæmd dagskrár á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2018.
Deildarstjóra Akureyrarstofu falið að ljúka samningaviðræðum og leggja endanlegan samning fyrir á næsta fundi.

3.NOVU 2018 - norrænt vinabæjamót ungmenna í Västerås

Málsnúmer 2018040349Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um næsta norræna vinabæjamót sem haldið verður í Västerås í Svíþjóð dagana 1.- 6. júlí nk.

4.Velferðarstefna 2014 - 2018

Málsnúmer 2015010191Vakta málsnúmer

Óskað er eftir umsögn stjórnar Akureyrarstofu á velferðarstefnu Akureyrarbæjar
Stjórn Akureyrarstofu felur sviðsstjóra að koma á framfæri ábendingum sem ræddar voru á fundinum.

5.Íbúakort

Málsnúmer 2017090124Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð frá Ozio ehf vegna vinnu við innleiðingu á íbúakorti.

Fundi slitið - kl. 18:30.