Skólanefnd

13. fundur 10. ágúst 2015 kl. 13:30 - 13:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista mætti ekki á fundinn og ekki varamaður í hennar stað.

1.Rekstur fræðslumála 2015

Málsnúmer 2015040087Vakta málsnúmer

Rekstur fræðslumála janúar til júní 2015. Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðuna.

2.Úttekt á læsi í leikskólum

Málsnúmer 2015080024Vakta málsnúmer

Sesselja Sigurðardóttir sérfræðingur á skóladeild kynnti niðurstöður úttektar á vinnu með læsi í leikskólum.

3.Arnarsíða og Bugðusíða - slysahætta á gatnamótum

Málsnúmer 2015050179Vakta málsnúmer

Arnarsíða-Bugðusíða, slysahætta á gatnamótum.
Erindi sem barst í viðtalstíma bæjarfulltrúa 21. maí 2015 og bæjarráð vísaði á fundi sínum 28. maí til fræðslustjóra.
Heimir Eggerz Jóhannsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna vék af fundi undir þessum lið.
Skólanefnd tekur undir áhyggjur foreldra af slysahættunni á þessum stað. Skólanefnd óskar eftir því að framkvæmdadeild Akureyrarbæjar bregðist við sem allra fyrst með lausn í þeirri viðleitni að tryggja öryggi skólabarna í umferðinni á þessu svæði.

4.Þjóðarsáttmáli um læsi

Málsnúmer 2015070137Vakta málsnúmer

Þjóðarsáttmáli um læsi. Átak á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Kynning.
Skólanefnd samþykkir þátttöku í átaki á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis um þjóðarsáttmála um læsi og hvetur Akureyrarbæ og íbúa til að taka heilshugar þátt í átakinu.
Þjóðarsáttmálinn samræmist vel áherslum skólanefndar og skólasamfélagsins á Akureyri.

5.Litbrigði læsis, læsi er lykillinn

Málsnúmer 2015080004Vakta málsnúmer

Læsisátak í leik- og grunnskólum. Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri kynnti verkefnið.
Átakið Litbrigði læsis, læsi er lykillinn hefst með Menntabúðum, læsisráðstefnunni Litbrigði læsis, læsi er lykillinn, sem haldin verður í Brekkuskóla fimmtudaginn 13. ágúst 2015.
Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir vék af fundi kl. 15:55.

Fundi slitið - kl. 13:30.