Skólanefnd

11. fundur 15. júní 2015 kl. 13:30 - 15:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Svava Hjaltalín fulltrúi grunnskóla boðaði forföll og varamaður hennar komst ekki á fund í hennar stað.
Sædís Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólanemenda var fjarverandi og varamaður mætti ekki í hennar stað.

1.Vinnumat í grunnskólum 2015

Málsnúmer 2015060120Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson fulltrúi í skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti tilgang og markmið vinnumats í grunnskólum og helstu breytingar sem það hefur í för með sér.
Skólanefnd þakkar Karli fyrir kynninguna.
Karl Frímannsson vék af fundi kl. 14:27.

2.Fjárhagsáætlun 2015 - skólanefnd

Málsnúmer 2014070179Vakta málsnúmer

Áhrif samþykktar á vinnumat á launakostnað grunnskóla 2015. Árni Konráð Bjarnason fór yfir stöðuna.
Skólanefnd óskar eftir auknu fjármagni til að mæta kostnaði vegna vinnumatsákvæðis í nýjum kjarasamningi kennara.

3.Fjárhagsáætlun 2015 - skólanefnd

Málsnúmer 2014070179Vakta málsnúmer

Sérkennsluþörf barna á leikskólum haustið 2015. Árni Konráð Bjarnason fór yfir málið.
Skólanefnd óskar eftir viðbótarfjármagni frá bæjarráði að upphæð kr. 8.9 milljónir króna til að bregðast við aukinni sérkennsluþörf í leikskólum.

4.Fundaáætlun skólanefndar fyrir haustið 2015

Málsnúmer 2014070180Vakta málsnúmer

Fundaáætlunin samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:30.