Skólanefnd

10. fundur 01. júní 2015 kl. 13:30 - 16:15 Hlíðarskóli
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Málefni Hlíðarskóla haustið 2015

Málsnúmer 2015050240Vakta málsnúmer

Málefni Hlíðarskóla rædd. Bryndís Valgarðsdóttir skólastjóri fór yfir stöðu skólans hvað varðar nemendahóp, starfsmannahóp, skólahúsnæði, skólalóð og næsta starfssár.
Skólanefnd þakkar Bryndísi fyrir kynninguna.

2.Rekstur fræðslumála 2015

Málsnúmer 2015040087Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála eftir fyrsta ársfjórðung 2015.

3.Foreldrafærninámskeið

Málsnúmer 2015050242Vakta málsnúmer

Siguróli Magni Sigurðsson fulltrúi í skólanefnd kynnti hugmyndir um samstarf samfélags- og mannréttindaráðs og skóladeildar um stuðning við foreldra um skólagöngu barna sinna.
Skólanefnd fagnar hugmyndinni og felur fræðslustjóra að skoða hugmyndina nánar í samráði við samfélags-og mannréttindaráð.

4.Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2016-2019

Málsnúmer 2015050243Vakta málsnúmer

Umræður um helstu áherslur í fjárhagsáætlanagerð fyrir fræðslumál næstu ára.
Dagsskrárlið frestað.

5.Framtíðarsýn fræðslumála

Málsnúmer 2015050244Vakta málsnúmer

Almennar umræður um framtíðarsýn og helstu áherslur í skólamálum næstu árin.
Dagskrárlið frestað.

Fundi slitið - kl. 16:15.