Skólanefnd

7. fundur 20. apríl 2015 kl. 13:30 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista tilkynnti veikindi og varamaður hennar komst heldur ekki á fund í hennar stað vegna veikinda.

Eva Hrund Einarsdóttir D-lista boðaði forföll og sat Hanna Dögg Maronsdóttir fundinn í hennar stað.

Svava Þórhildur Hjaltalín fulltrúi grunnskólakennara boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hennar stað.

1.Skólasmiðjan - sértækt skólaúrræði í Rósenborg

Málsnúmer 2015020091Vakta málsnúmer

Guðbjörg Ingimundardóttir kynnti sértækt skólaúrræði fyrir grunnskólabörn sem þróað hefur verið í Rósenborg.

2.Rekstur fræðslumála 2015

Málsnúmer 2015040087Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar kynnti rekstrarstöðu fræðslumála tímabilið janúar-febrúar 2015.

3.Matseðlar og mötuneyti í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2015030215Vakta málsnúmer

Erindi sem barst í viðtalsíma bæjarfulltrúa 19. mars 2015.
Allir leik- og grunnskólar á Akureyri hafa sameiginlega matseðla. Þessir matseðlar hafa verið yfirfarnir af rannsóknarþjónustunni Sýni með tilliti til næringarinnihalds og samsetningar.
Uppskriftir eru endurskoðaðar með tilliti til viðmiða Landlæknisembættisins eða ef athugasemdir berast.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um matseðla á heimasíðu skóladeildar.

Hvað varðar gjald á skólamáltíðum þá er gengið út frá því að verð á skólamáltíðum grunnskóla standi undir öllum kostnaði við rekstur mötuneytanna, þ.e. hráefniskostnaði og grunnlaunakostnaði mötuneyta, rafmagni, viðhaldi og afborgun stofnkostnaðar.

Það gjald sem starfsmenn skólanna greiða fyrir máltíð á vinnustað er kjarasamningsbundið og miðast við hráefnisverð.

Tekin er ákvörðun um gjaldskrá við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni.
Sædís Inga Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna vék af fundi kl. 15:00.

4.Breytingar á húsnæði Naustaskóla vegna leikskóladeildar

Málsnúmer 2015040117Vakta málsnúmer

Jónína Hauksdóttir skólastjóri Naustatjarnar mætti til fundar undir þessum lið.
Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir stöðu málsins og skólastjórar Naustaskóla og Naustatjarnar lýstu viðhorfum sínum til málsins.
Fyrir liggur áætlun um kostnað við þær breytingar sem þarf að gera frá Fasteignum Akureyrarbæjar.
Skólanefnd samþykkir erindið og vísar málinu til bæjarráðs.
Sædís Inga Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna mætti aftur til fundar kl. 15:27.

5.Breytingar á húsnæði í Oddeyrarskóla

Málsnúmer 2015040116Vakta málsnúmer

Erindi frá skólastjórnendum Oddeyrarskóla um minniháttar breytingar á skólahúsnæði.
Skólanefnd samþykkir erindið og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.

6.Niðurstöður samræmdra könnunarprófa

Málsnúmer 2015040114Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar fór yfir helstu niðurstöður.

Fundi slitið - kl. 16:00.