Skólanefnd

3. fundur 02. febrúar 2015 kl. 13:30 - 15:37 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá

1.Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri

Málsnúmer 2014110138Vakta málsnúmer

Birna M. Svanbjörnsdóttir forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar HA fór yfir helstu samstarfsverkefni miðstöðvarinnar og skóladeildar.
Fjöldi samstarfsverkefna hefur verið í gangi milli háskólans og skóla Akureyrarbæjar. Meðal þeirra eru:

Byrjendalæsi
Undirbúningur og kynning á Læsi til náms
Innleiðing aðalnámsskrár og leiðsagnarmat
Stærðfræði
Foreldrar og læsi barna
Eineltis- og samskiptamál í skólum
Þróunarverkefni í leikskólum
Mótun lærdómssamfélags á báðum skólastigum
Læsisstefna
Viðhorfakannanir
Endurskoðun skólastefnu
Ráðstefnur

Meðal þeirra verkefna sem framundan er að vinna er að þróa enn frekar lestrar- og læsiskennslu í samræmi við læsisstefnu sem er í mótun, endurskoðun á skólastefnu bæjarins, þróa leiðir til að efla líðan og samskipti í skólum Akureyrarbæjar, efla færni kennara í notkun upplýsingatækni í skólastarfi með nemendum og fleira.
Skólanefnd þakkar Birnu fyrir kynninguna.

2.Auglýsingar í leik- og grunnskólum - viðmiðunarreglur

Málsnúmer 2014010209Vakta málsnúmer

Sigurbjörg Rún Jónsdóttir verkefnastjóri á skóladeild kynnti verklagsreglur um auglýsingar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.

3.Nemendaspá

Málsnúmer 2012030022Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi á skóladeild fóru yfir spá um þróun nemendafjölda í leik- og grunnskólum Akureyrar á næstu 10 árum.

4.Skólatónleikar og listsýningar í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2015010262Vakta málsnúmer

Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri kynnti hugmyndir um uppbyggingu skólatónleika og listsýninga í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Fræðslustjóra falið að vinna áfram að málinu.

Fundi slitið - kl. 15:37.