Skólanefnd

20. fundur 27. október 2014 kl. 14:00 - 17:20 Lundarskóli
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Inga Sigrún Atladóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Preben Jón Pétursson Æ-lista mætti ekki á fundinn og ekki heldur varamaður hans.

1.Frístundaheimili - breyting á lögum

Málsnúmer 2014100293Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 17. október 2014 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á að mennta - og menningarmálaráðuneyti hefur sett í opið samráðsferli breytingar á grunnskólalögum er varða frístundaheimili.
Starfshópur um málefni frístundaheimila fyrir nemendur á grunnskólastigi hefur afhent mennta- og menningarmálaráðherra greinargerð ásamt tillögu að breytingu á 33. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Einnig fylgdi skýrsla með niðurstöðum könnunar um starfsemi frístundaheimila sem unnin var sl. vetur á vegum starfshópsins á frístundaheimilum og er aðgengileg á vef ráðuneytisins.
Tillagan fer nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni hennar og skila inn athugasemdum og ábendingum til ráðuneytisins eigi síðar en 7. nóvember nk. á netfangið erla.osk.gudjonsdottir@mrn.is

2.Menntamál - Hvítbókin

Málsnúmer 2014060181Vakta málsnúmer

Hvítbók um umbætur í menntun hefur verið gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Farið var yfir helstu áhersluþætti sem koma fram í henni og hugsanleg áhrif á skólastarf á Akureyri.

3.Heimsóknir í skóla

Málsnúmer 2014080063Vakta málsnúmer

Skólanefnd heimsótti Lundarskóla og leikskólann Lundarsel. Gengið var um húsnæði skólanna og starfsemin kynnt. Um kynninguna sáu skólastjórar skólanna Björg Sigurvinsdóttir skólastjóri Lundarsels og Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri Lundarskóla.

Skólanefnd þakkar Björgu og Elíasi fyrir góðar og athyglisverðar kynningar.

4.Þriggja ára áætlun fræðslumála 2016-2018

Málsnúmer 2014100079Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að þriggja ára áætlun fyrir málaflokkinn fræðslumál.

Skólanefnd frestar afgreiðslu.

5.Rekstur fræðslumála 2014

Málsnúmer 2014050003Vakta málsnúmer

Lagt var fram yfirlit yfir stöðu í rekstri málaflokksins fyrir 9 mánuði ársins. Þá var lögð fram útgönguspá fyrir fjárhagsárið 2014.

6.Félag tónlistarskólakennara - ályktanir vegna funda haust 2014

Málsnúmer 2014100089Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram til kynningar ályktanir og upplýsingar vegna yfirstandandi verkfalls Félags tónlistarskólakennara.

Skólanefnd Akureyrarbæjar leggur til að greiðsluseðlar vegna tónlistarnáms í Tónlistarskóla Akureyrar fyrir nóvember mánuð verði ekki sendir út, vegna yfirstandandi verkfalls tónlistarkennara.

Skólanefnd vísar málinu til bæjarráðs.

7.Vinnuhópur um sértækt hópastarf - september 2014

Málsnúmer 2014090198Vakta málsnúmer

Á fundinum var kynnt starf og hugmyndir vinnuhóps um sértækt hópastarf fyrir ungmenni á Akureyri.

8.Rafræn handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

Málsnúmer 2014100122Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 14. október 2014 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem fram kemur að gerð hafa verið drög að rafrænni handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum sem unnin er á grundvelli laga um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerðar um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða nr. 657/2009.
Í handbókinni eru leiðbeiningar fyrir sveitarfélög, rekstraraðila grunnskóla, skólastjórnendur, kennara og aðra sem starfa í grunnskólum, um velferð og öryggi barna í grunnskólum.
Fram til 31. október 2014 er öllum þeim sem áhuga hafa gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við drögin að handbókinni. Athugasemdir óskast sendar á netfangið bjork.ottarsdottir@mrn.is.

Fundi slitið - kl. 17:20.