Skólanefnd

11. fundur 11. ágúst 2014 kl. 14:00 - 17:14 Hlíðarskóli
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Kristlaug Svavarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Hildur Elínar Sigurðardóttir fulltrúi leikskólakennara, Sædís Inga Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna og Guðný Garðarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna boðuðu allar forföll.

1.Endurskoðun á starfsemi Hlíðarskóla

Málsnúmer 2013120097Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn voru lögð drög að stefnuskrá fyrir Hlíðarskóla. Ásamt drögunum fylgdu hugmyndir um vinnubrögð í grunnskólum áður en sótt er um í Hlíðarskóla og kostnaðarmat á þeim framkvæmdum sem til þarf ef uppfylla á óskir um aðbúnað.

Skólanefnd óskar eftir umsögn um skýrsluna frá grunnskólunum og fjölskyldudeild.

2.Gjaldskrá vegna daggæslu

Málsnúmer 2014070182Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga um að gjaldskrá vegna daggæslu verði óbreytt þrátt fyrir kostnaðarauka í kjölfar breytinga á kjarasamningum sem hámarksgjald vegna daggæslu tekur mið af samkvæmt gildandi samningum við dagforeldra. Reikna má með því að aukinn rekstrarkostnaður á þessu ári vegna þessa verði nálægt 5 milljónum kr.

Meirihluti skólanefndar samþykkir fyrirliggjandi tillögu fyrir sitt leyti og óskar eftir viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 5.000.000 til að mæta auknum kostnaði á árinu.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.

3.Fundaáætlun skólanefndar 2014

Málsnúmer 2013120095Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að fundaáætlun skólanefndar fyrir ágúst til desember 2014.

Skólanefnd samþykkir tillöguna.

4.Fjárhagsáætlun 2015 - skólanefnd

Málsnúmer 2014070179Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lagt fram til kynningar fjárhagsáætlunarferli á árinu 2014.

5.Langtímaáætlun - fræðslumál

Málsnúmer 2013020252Vakta málsnúmer

Á fundinum var farið yfir markmið langtímaáætlunar skólanefndar.

Skólanefnd samþykkir að fresta þessum lið til næsta fundar.

6.Starfsáætlun 2015 - skólanefnd

Málsnúmer 2014070180Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð fram til kynningar tillaga að gerð starfsáætlunar skólanefndar 2015.

7.Málþing um skólamál 8. september 2014

Málsnúmer 2014050024Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 6. maí 2014 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem tilkynnt er um að málþing sambandsins um skólamál verður haldið 8. september 2014. Áhersla þingsins verður á árangur skólastarfs með fókus á námsárangur.

8.Minni ásókn fagfólks í störf í leikskólum

Málsnúmer 2014070010Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2014 frá Guðbjörgu Sesselju Jónsdóttur f.h. samtaka sjálfstæðra skóla. Þar er lýst áhyggjum af því að færra fagfólk sækir í störf í leikskólum. Í ljósi þess er bent á að starfsheitið leikskólaliði er ekki talið með fagfólki í öllum sveitarfélögum þegar gefið er upp hlutfall fagfólks í leikskólunum. Óskað er eftir því að sveitarfélög samræmi túlkun sína á því hvaða starfsheiti falla undir hugtakið fagfólk og fari þá eftir túlkun Reykjavíkurborgar og Hagstofu Íslands þar sem starfsheitið leikskólaliði er talið með fagfólki.

Skólanefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 17:14.