Skólanefnd

3. fundur 03. febrúar 2014 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Áslaug Magnúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • Jón Aðalsteinn Brynjólfsson fulltrúi grunnskólakennara
  • Sædís Inga Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Kristlaug Þ Svavarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Hildur Elínar Sigurðardóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Gunnar Gíslason fræðslustjóri
Dagskrá

1.Auglýsingar í leik- og grunnskólum - viðmiðunarreglur

Málsnúmer 2014010209Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að viðmiðunarreglum um auglýsingar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar. Afgreiðslu tilögunnar var frestað á síðasta fundi skólanefndar og óskað eftir því að skólanefndarfulltrúar kynntu hana í sínu baklandi.

Skólanefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar og felur fræðslustjóra að gera beytingar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum.

2.Reglur um afslætti af gjaldskrám fræðslu- og uppeldismála

Málsnúmer 2013100162Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá tillaga til umræðu um nýjar reglur vegna afslátta á gjaldskrám leikskóla. Á fundi skólanefndar 6. janúar 2014 var samþykkt að fela leikskólafulltrúa að vinna áfram að reglunum í samræmi við umræður á fundinum. Tillagan felur það í sér að sækja þurfi um afslátt frá gjaldskrá og að afsláttarprósenta verði tekjutengd í tveimur þrepum. Sambærilegar reglur eru gildar í Hafnarfirði og í Mosfellsbæ. Þá liggur einnig fyrir erindi frá bæjarráði dags. 16. janúar 2014. Þar er greint frá því að Heimir Eggerz Jóhannsson hafi mætt í viðtalstíma bæjarfulltrúa.
Heimir er ósáttur við afsláttarfyrirkomulag í mötuneytum grunnskóla og frístund og vistunargjöld í leikskóla sem ná til námsmanna og einstæðra foreldra en ekki öryrkja.

Skólanefnd frestar afgreiðslu og felur leikskólafulltrúa að vinna að breytingu á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum.

3.Fræðslu- og uppeldismál - rekstur 2013

Málsnúmer 2013060268Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lagt til kynningar bráðabirgðauppgjör á rekstri Fræðslu- og uppeldismála fyrir árið 2013.

4.Lundarskóli - frístund, aðstaða

Málsnúmer 2013060212Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 9. desember 2013 frá skólastjóra Lundarskóla. Þar er lögð fram tillaga frá skólanum um framtíðarlausn á aðstöðu vegna frístundar við skólann. Þá er samhliða óskað eftir ýmsum lagfæringum innanhúss til að nýta húsnæðið sem best til kennslu. Skólanefnd óskaði eftir því við Fasteignir Akureyrarbæjar, á fundi sínum 16. desember 2013, að tillögurnar yrðu kostnaðarmetnar. Fyrir fundinum lá umbeðið kostnaðarmat.

Skólanefnd samþykkir að óska eftir því við Fasteignir Akureyrarbæjar að fara í þær breytingar á húsnæði Lundarskóla sem taldar eru upp í meðfylgjandi skjali sem tengjast tilfærslu á aðstöðu frístundar. Þá vill skólanefnd þakka stjórnendum og starfsfólki Lundarskóla fyrir lausnamiðaða vinnu.

5.Ytra mat á grunnskólum - Síðuskóli

Málsnúmer 2014010235Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 15. janúar 2014 frá Námsmatsstofnun. Þar er tilkynnt um að Síðuskóli á Akureyri sé í hópi þeirra 10 skóla sem hafa verið valdir í samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga, um mat og eftirlit með skólastarfi í samræmi við ákvæði grunnskólalaga þar að lútandi. Fram kemur að starf skólans verður metið á tímabilinu september til desember 2014.

 

Skólanefnd samþykkir að halda næsta fund þann 17. febrúar nk. í Giljaskóla og þá verði sérdeild skólans heimsótt.

Fundi slitið - kl. 16:30.