Skólanefnd

2. fundur 20. janúar 2014 kl. 14:00 - 15:50 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Áslaug Magnúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Sædís Inga Ingimarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna boðaði forföll.

1.Auglýsingar í leik- og grunnskólum - viðmiðunarreglur

Málsnúmer 2014010209Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að viðmiðunarreglum um auglýsingar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir verkefnastjóri á skóladeild mætti á fundinn undir þess lið og kynnti tillöguna.

Skólanefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar og óskar eftir því að fulltrúar í skólanefnd kynni og ræði tillöguna í baklandi sínu.

2.Álag og fjarvera í leikskólum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013120098Vakta málsnúmer

Erindi dags. 2. janúar 2014 frá Svölu Ýrr Björnsdóttur og Höllu Steingrímsdóttur f.h. trúnaðarmanna leikskólakennara í leikskólum Akureyrarbæjar. Þar er óskað eftir því að veikindaafleysing í leikskólum verði aukin svo manna megi betur veikindi starfsmanna í leikskólum. Fram kemur að við núverandi ástand sé gengið á undirbúningstíma leikskólakennara sem sé brýnt að virða og annarra leiða verði leitað til að manna veikindi starfsmanna.

Skólanefnd samþykkir að vísa erindinu til starfshóps um álag og fjarveru í leikskólum sem settur var á fót á 20. fundi skólanefndar 2013.

3.PISA 2012

Málsnúmer 2013120093Vakta málsnúmer

Upplýsingar voru lagðar fyrir fundinn um stöðu mála varðandi frekari greiningu á niðurstöðum PISA prófanna 2012 í skólum Akureyrarbæjar. Fram kom að vinna er hafin hjá Námsmatsstofnun og má reikna með niðurstöðum í febrúar.

4.Samtaka - svæðisráð foreldra - beiðni um fjárstuðning við námskeiðshald

Málsnúmer 2014010103Vakta málsnúmer

Erindi dags. 15. nóvember 2013 frá Heimi Eggerz Jóhannssyni fyrir hönd Samtaka, svæðisráðs foreldra grunnskólabarna á Akureyri. Óskað er eftir því að gerður verði samningur milli Samtaka og skóladeildar Akureyrarbæjar um árlegan fjárstuðning vegna námskeiða og fyrirlestra annars vegar og ferðakostnaðar á fulltrúaráðsfundi og aðalfund Heimils og skóla hins vegar.

Skólanefnd tekur jákvætt í erindið og felur fræðslustjóra að ræða við stjórn Samtaka og gera drög að samstarfssamningi.

5.Ytra mat á grunnskólum á vegum skóladeildar Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014010208Vakta málsnúmer

Á fundinum voru ræddar hugmyndir að því hvernig staðið verður að kerfisbundnu ytra mati á starfi og árangri grunnskóla Akureyrarbæjar.

6.Ytra mat í leikskólum á vegum skóladeildar Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014010207Vakta málsnúmer

Á fundinum voru ræddar hugmyndir að þróunarverkefni á ytra mati á leikskólum sem ætlað er að unnið verði í samstarfi við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið - kl. 15:50.