Skólanefnd

20. fundur 16. desember 2013 kl. 14:00 - 15:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Áslaug Magnúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2014 - fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2013080061Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný útfærsla á fjárhagsáætlun 2014 þar sem tekið hefur verið tillit til þess að bæjarráð ákvað á fundi sínum 5. desember sl. að draga til baka 6% hækkun á vistunargjöldum leikskóla.

2.Lundarskóli - frístund aðstaða

Málsnúmer 2013060212Vakta málsnúmer

Erindi dags. 9. desember 2013 frá skólastjóra Lundarskóla. Þar er lögð fram tillaga frá skólanum um framtíðarlausn á aðstöðu vegna frístundar við skólann. Þá er samhliða óskað eftir ýmsum lagfæringum innanhúss til að nýta húsnæðið sem best til kennslu.

Skólanefnd samþykkir að óska eftir því við Fasteignir Akureyrarbæjar að gera kostnaðarmat á fyrirliggjandi tillögum.

3.Álag og fjarvera í leikskólum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013120098Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. desember 2013 frá sjö leikskólastjórum á Akureyri. Þar kemur fram að álag og fjarvera undanfarin ár hefur haft áhrif á líðan starfsfólks í leikskólum og nú hafa fjarverur aukist til muna. Óskað er eftir samstarfi um að gerð verði greining á stöðunni og starfshópur settur á laggirnar til að leita leiða til lausna.

Skólanefnd samþykkir að fela leikskólafulltrúa að skipa starfshóp í samræmi við framkomnar óskir í erindinu.

4.PISA 2012

Málsnúmer 2013120093Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð skýrsla um niðurstöðu PISA prófanna 2012. Þá var einnig tilkynnt að búið er að óska eftir sambærilegri greiningu á niðurstöðum prófanna nú og var gert vegna prófanna 2009.

Skólanefnd samþykkir að fresta frekari umræðu þar til greining á niðurstöðum fyrir skóla Akureyrarbæjar liggur fyrir í janúar 2014.

5.Starfshópur - skólastjórnendur á Akureyri

Málsnúmer 2013120094Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga frá formanni nefndarinnar um að settur verði á fót starfshópur til að skoða hvort æskilegt og mögulegt sé að bjóða skólastjórnendum að flytja sig milli skóla eftir ákveðinn tíma í starfi á hverjum stað.
Lagt er til að í þessum starfshópi verði formaður skólanefndar, fræðslustjóri eða leikskólafulltrúi, þróunarstjóri á starfsmannaþjónustu, fulltrúi grunnskólastjóra og fulltrúi leikskólastjóra. Reiknað er með að starfshópurinn skili af sér niðurstöðu í lok mars 2014.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

6.Endurskoðun á starfsemi Hlíðarskóla

Málsnúmer 2013120097Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga um að stofnaður verði starfshópur sem hafi það hlutverk að endurskoða starfsemi og þjónustu Hlíðarskóla í ljósi breyttra aðstæðna í grunnskólunum. Lagt er til að óskað verði eftir tilnefningum frá Hlíðarskóla, fjölskyldudeild, skólastjórum og kennurum grunnskóla og Miðstöð skólaþróunar HA. Lagt er til að fræðslustjóri stýri starfi hópsins.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og felur fræðslustjóra að kalla starfshópinn saman og stýra starfi hans.

7.Viðmið um fyrirmyndaraðbúnað í skólum - starfshópur

Málsnúmer 2013120096Vakta málsnúmer

Með hliðsjón af langtímaáætlun skólanefndar var lagt til að stofnaður verði starfshópur á vegum skólanefndar til að vinna upp viðmið um fyrirmyndaraðbúnað í skólum Akureyrarbæjar. Eftirtöldum aðilum verði boðið að tilnefna fulltrúa sinn í hópinn:
Skólastjórum grunnskóla
Skólastjórum leikskóla
Grunnskólakennurum
Leikskólakennurum
Skóladeild
Fasteignum Akureyrarbæjar
Íþróttadeild
Samtaka f.h. foreldra

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og felur fræðslustjóra að kalla starfshópinn saman og stýra starfi hans.

8.Ytra mat á leikskólum 2014

Málsnúmer 2013120048Vakta málsnúmer

Erindi dags. 5. desember 2013 frá Þóru Björk Jónsdóttur f.h. Námsmatsstofnunar þar sem auglýst er eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari ytra mat á starfi leikskóla innan þeirra, bæði þeirra sem reknir eru af sveitarfélaginu og öðrum aðilum. Umsóknir skulu berast Námsmatsstofnun frá sveitarstjórnum fyrir 31. desember 2013.

Skólanefnd samþykkir að hvetja leikskóla á Akureyri til að taka þátt og felur leikskólafulltrúa að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.

9.Fundaáætlun skólanefndar 2014

Málsnúmer 2013120095Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð fundaáætlun skólanefndar 2014, fram til loka maí.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

10.Sumarlokun leikskóla 2014

Málsnúmer 2013120092Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lagt til kynningar yfirlit yfir sumarlokanir leikskólanna 2014.

Fundi slitið - kl. 15:40.