Skólanefnd

18. fundur 18. nóvember 2013 kl. 14:00 - 16:19 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Áslaug Magnúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Valur Sæmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Þorvaldur Sigurðsson L-lista boðaði forföll.

1.Snjallforrit 2know

Málsnúmer 2013110126Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu Matthías Rögnvaldsson og Björn Gíslason til að kynna 2know app fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Skólanefnd þakkar Matthíasi og Birni fyrir áhugaverða kynningu.

2.Langtímaáætlun - fræðslumál

Málsnúmer 2013020252Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að langtímaáætlun fræðslu- og uppeldismála til næstu tíu ára.

Skólanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

3.Stöðuskýrsla nefnda 2013-2014

Málsnúmer 2013090098Vakta málsnúmer

Á fundinum kynnti formaður skólanefndar stöðuskýrslu skólanefndar sem hann mun flytja í bæjarstjórn þriðjudaginn 19. nóvember 2013.

Fundi slitið - kl. 16:19.