Skólanefnd

2. fundur 21. janúar 2013 kl. 14:00 - 14:35 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Sigríður María Hammer
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Karl Frímannsson fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2013010191Vakta málsnúmer

Breyting á samþykktri gjaldskrá fyrir dagforeldra vegna mistaka í útreikningum.

Skólanefnd staðfestir leiðrétta gjaldskrá fyrir dagforeldra sem hækkar um 4,1% frá og með 1. mars 2013 samkvæmt samningsbundnum ákvæðum í kjarasamningi Einingar-Iðju.

2.Grunnskólinn í Hrísey - beiðni um sparkvöll

Málsnúmer 2011110003Vakta málsnúmer

Vísað er í 4. lið fundargerðar íþróttaráðs dags. 17. janúar 2013 en þar segir:
Erindi móttekið 28. september 2012 frá nemendum og aðstandendum Hríseyjarskóla þar sem íþróttaráð er hvatt til að setja upp sparkvöll við skólann.
Íþróttaráð þakkar fyrir erindið og vísar því áfram til skólanefndar Akureyrarbæjar.

Skólanefnd þakkar Hríseyingum fyrir erindið.

Ekki er gert ráð fyrir byggingu sparkvallar í Hrísey á fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Málinu er vísað til 10 ára áætlanagerðar Akureyrarkaupstaðar.

Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista gerði athugasemdir við hversu seint bréfið frá Hríseyingum barst skólanefnd.

3.Leikskólar - beiðni um fjölgun á starfsdögum

Málsnúmer 2013010192Vakta málsnúmer

Þann 17. janúar 2013 barst erindi frá Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa á skóladeild.

Óskað er eftir heimild til að fjölga starfsdögum í leikskólum um einn (8 klst.) á skólaárinu 2013-2014 frá því sem nú er til að vinna að innleiðingu nýrrar aðalnámskrár.

Skólanefnd samþykkir tillöguna einróma.

4.Skólanámskrá leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2013010190Vakta málsnúmer

Tillaga að fyrirkomulagi starfsdaga skólaárið 2013-2014 í leik- og grunnskólum.

Skólaárið 2013-2014 verður 4. október sameiginlegur starfsdagur í leik- og grunnskólum Akureyrarkaupstaðar. Þann dag verður ráðstefnan Samræða skólastiganna haldin á Akureyri þar sem megin umfjöllunarefnið verður Lærdómssamfélagið (Professional Learning Community).

Jafnframt mælist skólanefnd til þess að leik- og grunnskólar innan sama hverfis samræmi ákvarðanir um starfsdaga eins og frekast er kostur.

Fundi slitið - kl. 14:35.