Skólanefnd

15. fundur 17. september 2012 kl. 14:00 - 15:59 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Salóme Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Karl Frímannsson fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Næringarfræði - kynning á verkefni

Málsnúmer 2012090166Vakta málsnúmer

Friðný H. Helgadóttir verkefnastjóri í næringarfræði á skóladeild mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefnis um næringu barna.

2.Samband íslenskra sveitarfélaga - skilgreining grunnþjónustu á sviði fræðslumála

Málsnúmer 2012090165Vakta málsnúmer

Greinargerð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. desember 2008 um skilgreiningu á grunnþjónustu á sviði fræðslumála lögð fram til kynningar.

3.Sameining leikskóla - Pálmholt/Flúðir og Holtakot/Síðusel

Málsnúmer 2012050019Vakta málsnúmer

Erna Rós Ingvarsdóttir skólastjóri Flúða/Pálmholts og Snjólaug Pálsdóttir skólastjóri Holtakots/Síðusels mættu á fundinn og gerðu grein fyrir stöðu sameiningarferlis leikskólanna.

4.Skilgreining á skóladögum í grunnskólum - álit mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 30. ágúst 2012

Málsnúmer 2012090007Vakta málsnúmer

Álit mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 30. ágúst 2012 um skilgreiningu á skóladögum í grunnskólum lagt fram til kynningar.

5.Móttaka innflytjenda á skólaaldri í grunnskóla Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2012050018Vakta málsnúmer

Erindi frá Þórhildi Helgu Þorleifsdóttur skólastjóra Lundarskóla fyrir hönd grunnskólaskólastjóra Akureyrar dags. 4. september 2012 þar sem óskað er eftir frekari útskýringu á afgreiðslu máls vegna móttöku innflytjenda á skólaaldri í grunnsskóla Akureyrarkaupstaðar.

Afgreiðslu málsins frestað.

6.Fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2012060177Vakta málsnúmer

Umræða um fjárhagsáætlun 2013. Lögð var fram launaáætlun fyrir fræðslu- og uppeldismál auk fyrstu draga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.

Arna Heiðmar Guðmundsdóttir fulltrúi grunnskólakennara vék af fundi kl. 15:30.

Fundi slitið - kl. 15:59.