Skólanefnd

6. fundur 19. mars 2012 kl. 14:00 - 17:03 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Sigríður María Hammer
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Salóme Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Viðhaldsáætlun FAK 2012 - leik- og grunnskólar

Málsnúmer 2012030168Vakta málsnúmer

Óskar Gísli Sveinsson verkefnastjóri viðhaldsverkefna hjá FAK og Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri mættu á fundinn og fóru yfir viðhaldsáætlun ársins 2012 í skólum Akureyrarbæjar.

2.Stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2010040041Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn voru lagðar tillögur stýrihóps um stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar. Tillögurnar fela meðal annars í sér að heildstæðir grunnskólar með 400-500 nemendum á aldrinum 6-16 ára verði festir í sessi, unnið verði að sameiningu leikskóla þannig að á hverjum þeirra verði 90-150 börn, hvatt verði til aukinnar teymisvinnu kennara í öllum skólum bæjarins og dreifstýring verði aukin í leikskólum til samræmis við það sem er í grunnskólum. Markmið tillagnanna er að efla faglegt starf innan skóla Akureyrarbæjar.
Tillögurnar eru aðgengilegar á heimasíðu skóladeildar http://skoladeild.akureyri.is

Skólanefnd samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögunum til næsta fundar svo tækifæri gefist til frekari skoðunar, kynningar og umræðu.

3.Nemendaspá 2013-2018

Málsnúmer 2012030022Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn voru lögð til kynningar og umræðu, drög að nemendaspá 2013-2018 fyrir leikskóla.
Jóhannes Gunnar Bjarnason og Kristlaug Þ. Svavarsdóttir yfirgáfu fundinn kl. 15:55 og Vilborg Þórarinsdóttir kl. 16:07.

4.Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008080068Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi skólanefndar var að ósk Önnu Sjafnar Jónasdóttur L-lista opnuð umræða innan skólanefndar um endurskoðun fjölskyldustefnunnar.
Á fundinum var haldið áfram að ræða málin frá ýmsum hliðum og komu margar hugmyndir fram, sem verða ræddar áfram.

5.Almenn kennsla - úthlutun 2012

Málsnúmer 2012030078Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að skiptingu kennslustunda til almennrar kennslu og sérkennslu milli skólanna. Fram kom á fundinum að ekki liggur enn endanlega fyrir hvernig sérkennsla dreifist þar sem ekki er komin niðurstaða í hvar nokkrir nemendur sem þurfa mikinn stuðning verða staðsettir.
Fyrir liggur að unnið er í samræmi við samþykkt viðmið um úthlutun.

Skólanefnd felur fræðslustjóra að ljúka skiptingu kennslustundanna milli skóla í samráði við skólastjóra.

Fundi slitið - kl. 17:03.