Skólanefnd

2. fundur 23. janúar 2012 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson varaformaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
  • Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2013-2015

Málsnúmer 2012010262Vakta málsnúmer

Til umræðu og kynningar voru frumdrög að þriggja ára áætlun vegna skólamála.

2.Tölvubúnaður í grunnskólum

Málsnúmer 2012010259Vakta málsnúmer

Lögð var fyrir fundinn samantekt frá Hjörleifi Hjálmarssyni fagráðgjafa í tölvumálum um stöðu tölvumála í grunnskólunum. Fram kom að umræða um endurnýjun á tölvum fyrir kennara er mikil í skólunum vegna aldurs tölvubúnaðarins.

Skólanefnd telur brýnt að endurnýja tölvubúnað skólanna og samþykkir að taka málið upp við gerð þriggja ára fjárhagsáætlunar.

3.Skólaakstur - reglur

Málsnúmer 2012010251Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn voru lögð drög að reglum um skólaakstur vegna grunnskóla á Akureyri.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum.

Ágúst Jakobsson yfirgaf fundinn kl. 15:15.

4.Skólaakstur í grunnskóla

Málsnúmer 2012010250Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá tillaga um að bjóða skólaakstur út, en fram kom að samkvæmt núgildandi samningi við SBA má framlengja samninginn um eitt ár enn.

Skólanefnd samþykkir tillöguna og felur fræðslustjóra að sjá til þess að útboðsgögn verði útbúin.

Jóhannes Gunnar Bjarnason yfirgaf fundinn kl. 15:45.

5.Sumarlokun leikskóla í Akureyrarbæ 2012

Málsnúmer 2011120006Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. janúar 2012 frá leikskólastjóra og starfsmönnum leikskólans Holtakots, þar sem ákvörðun skólanefndar um niðurröðun leikskóla í sumarlokun 2012 er harðlega mótmælt. Er farið fram á að skólanefnd færi Holtakot á seinna sumarlokunar-tímabilið.
Fram kom á fundinum að fulltrúi leikskólakennara, fulltrúi leikskólastjóra og leikskólafulltrúi, sem sæti eiga í skólanefnd, tóku að sér að raða skólunum niður á tímabil og því miður var ekki hægt að verða við ítrustu óskum um tímabil.

Skólanefnd getur ekki orðið við erindinu.

6.Stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2010040041Vakta málsnúmer

Á fundinum var farið yfir stöðu mála hjá stýrihópi um verkefnið. Fram kom að stýrihópurinn mun skila af sér innan skamms.
Kristlaug Svavarsdóttir yfirgaf fundinn kl. 16:10.

7.Ungmennafélag Íslands - gisting íþróttahópa í skólum

Málsnúmer 2012010072Vakta málsnúmer

Erindi dags. 3. janúar 2012 frá Sæmundi Runólfssyni f.h. Ungmennafélags Íslands varðandi tillögu sem samþykkt var á 47. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var í Menningarhúsinu Hofi dagana 15.- 16. október 2011. Á stjórnarfundi UMFÍ sem haldinn var 25. nóvember 2011 var ennfremur samþykkt að óska eftir því við sveitarfélögin að veita hópum sem eru í íþróttakeppni eða í öðrum samskiptum gistingu á afsláttarkjörum í skólum viðkomandi sveitarfélags.

Skólanefnd felur fræðslustjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum, en þar kom m.a. fram að á Akureyri er íþróttahópum veitt gisting á afsláttarkjörum nú þegar.

8.Tónlistarskólinn á Akureyri - styrkbeiðni vegna gistingar á SÍSL móti 2012

Málsnúmer 2011110116Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi sem frestað var á fundi skólanefndar 5. desember 2011. Þetta er erindi dags. 22. nóvember 2011 frá Mögnu Guðmundsdóttur f.h. Tónlistarskólans á Akureyri þar sem óskað er eftir styrk vegna gistingar á SÍSL móti dagana 27.- 29. apríl 2012.

Skólanefnd bendir á að Tónlistarskólinn getur fengið aðgang að skólahúsnæði til gistingar á sömu afsláttarkjörum og íþróttafélög í bæjarfélaginu.

9.Athugasemdir Samtaka við öryggismál í skólabílum

Málsnúmer 2011110127Vakta málsnúmer

Á fundi skólanefndar þann 5. desember 2011 var fræðslustjóra falið að afla frekari upplýsinga um öryggismál í rútum sem sinna akstri nemenda í grunnskólum í sund og leikfimi, en borist höfðu athugasemdir frá Vilborgu Þórarinsdóttur f.h. Samtaka.
Fyrir fundinn var lagt minnisblað með upplýsingum um skipulag aksturs og ábyrgð aðila.

Skólanefnd þakkar Samtaka fyrir ábendinguna og leggur mikla áherslu á að öryggi barna í skólaakstri sé ávallt tryggt með öllum tiltækum ráðum.

10.Athugasemdir við öryggismál í íþróttahúsi við Laugargötu

Málsnúmer 2011110127Vakta málsnúmer

Tekið fyrir svar frá Óskari Gísla Sveinssyni verkefnastjóra viðhaldsverkefna hjá Fasteignum Akureyrarbæjar vegna athugasemda við aðstöðu í íþróttahúsi í Laugagötu. Svar Óskars er eftirfarandi:
"Farið var í endurbætur á brunavörnum í Íþróttahúsi Laugargötu að kröfu eldvarnareftirlitsins.
Eldvarnareftirlitinu var tilkynnt um að framkvæmdunum væri lokið nóvember/desember síðastliðinn.
Hér með staðfestist að brunavarnakerfi íþróttahússins er orðið fullvirkt og samtengt Sundlaug Akureyrar.
Sömuleiðis hefur nýjum útgönguleiðum verið bætt við úr íþróttasölunum."

Skólanefnd fagnar því að brunavörnum við íþróttahús Laugargötu hefur verið fullnægt.

11.Námsleyfi fræðslustjóra

Málsnúmer 2012010249Vakta málsnúmer

Eftirfarandi lagt fram til kynningar:
Fræðslunefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt umsókn Gunnars Gíslasonar fræðslustjóra um námsleyfi og veitt honum styrk til 9 mánaða námsleyfis frá hausti 2012.

Fundi slitið - kl. 16:30.