Skólanefnd

21. fundur 15. ágúst 2011 kl. 10:00 - 12:10 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigurveig S. Bergsteinsdóttir formaður
  • Preben Jón Pétursson
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Undirbúningsfundur.
Undirbúningsfundur

1.Kjaraviðræður FL og LN

Málsnúmer 2011080038Vakta málsnúmer

Farið var yfir stöðuna í kjaraviðræðum leikskólakennara og sveitarfélaga.

2.Skólabyrjun 2011

Málsnúmer 2011080033Vakta málsnúmer

Farið var yfir helstu atriði sem tengjast skólabyrjun 2011 í grunn- og leikskólum.

3.Dagforeldrar - 50.000 kr. eingreiðsla

Málsnúmer 2011080018Vakta málsnúmer

Farið var yfir málið og upplýst um stöðu þess í ljósi þess að skólanefndarfulltrúar fengu tölvupóst frá dagforeldrum.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð fram til kynningar fjárhagsáætlunarferli á árinu 2011 og tímaáætlun.

5.Hollvinafélag Húna II - styrkbeiðni

Málsnúmer 2011080032Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 3. ágúst 2011 frá Hollvinum Húna II, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 2.000.000 til ungmennastarfs, en Hollvinir Húna II hafa í samvinnu við skóladeild Akureyrarbæjar og sérfræðinga frá Háskólanum á Akureyri rekið verkefnið "Frá öngli í maga" fyrir nemendur í 6. bekk undanfarin ár. Markmið verkefnisins er að auka áhuga og skilning þátttakenda á lífríki hafsins, sjómennsku og á hollustu sjávarfangs.

6.Leikskólagjöld fyrir börn með lögheimili utan Reykjavíkur - breyting á gjöldum

Málsnúmer 2011020147Vakta málsnúmer

Kynntar breytingar sem Reykjavíkurborg er að gera á innheimtu kostnaðar vegna barna í leikskólum Reykjavíkurborgar sem ekki eiga lögheimili þar. Einnig kynnt viðbrögð við þessum breytingum.

7.Mötuneyti leikskóla

Málsnúmer 2011040002Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna í vinnu við hagræðingu í rekstri mötuneyta eins og hún er núna og næstu skref rædd.

8.Tónlistarskólinn á Akureyri

Málsnúmer 2011040146Vakta málsnúmer

Samkomulag um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, sem undirritað var 13. maí 2011 kynnt og farið yfir vinnu Jöfnunarsjóðs vegna úthlutunarreglna.

Fundi slitið - kl. 12:10.