Skólanefnd

12. fundur 18. apríl 2011 kl. 14:00 - 17:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigurveig S. Bergsteinsdóttir formaður
  • Preben Jón Pétursson
  • Sigrún Björk Sigurðardóttir
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
Starfsmenn
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Starfsáætlun skólanefndar 2011

Málsnúmer 2011010037Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð til kynningar stefnuræða formanns sem flutt verður á bæjarstjórnarfundi þriðjudaginn 19. apríl 2011.

2.Mennta- og menningarmálaráðuneytið - aðalnámskrá grunnskóla

Málsnúmer 2010070080Vakta málsnúmer

Erindi dags. 13. apríl 2011 frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur birt endurskoðuð drög að almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla á vefsvæði sínu
http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/drog-ad-nyjum-namskram/grunnskolar--namskrardrog/
Frestur til að skila inn athugasemdum og umsögnum er til 1. maí 2011 á netfangið namskra@mrn.is

Skólanefnd þakkar greinargóða yfirferð á drögunum að aðlanámskrá grunnskóla.

3.Viðurkenningar skólanefndar 2011

Málsnúmer 2011040078Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn voru lagðar upplýsingar um viðurkenningar skólanefndar 2011.

Skólanefnd tilnefnir formann skólanefndar í valnefnd 2011 og felur fræðslustjóra að kalla eftir tilnefningum frá Samtaka og Miðstöð skólaþróunar HA í valnefnd. Þá samþykkir skólanefnd að fela fræðslustjóra að auglýsa eftir tilnefningum til viðurkenninga.

4.Stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2010040041Vakta málsnúmer

Kynntar voru umræður sem fram fóru á fundi stýrihóps og faghóps sem haldinn var 7. apríl sl.

5.Skólastjóri Lundarskóla - afleysing 2011-2012

Málsnúmer 2011010039Vakta málsnúmer

Kynnt var að Þorgerður Sigurðardóttir deildarstjóri og staðgengill skólastjóra í Lundarskóla mun gegna stöðu skólastjóra skólaárið 2011-2012. Að höfðu samráði við skólaráð var ákveðið að auglýsa stöður deildarstjóra innan skólans.

Fundi slitið - kl. 17:15.