Skólanefnd

8. fundur 23. maí 2016 kl. 13:30 - 15:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista boðaði forföll og varamaður átti þess ekki kost að mæta.

1.Ábending til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna

Málsnúmer 2016050176Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsett 3. maí 2016 með ábendingu til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna.

2.Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni - samstarfssamningur 2015

Málsnúmer 2015040043Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur um þjónustu sem Aflið mun veita einstaklingum og hópum, fræðslu- og kynningarstarf fyrir stofnanir Akureyrarbæjar og hópa fagfólks og forvarnastarf.

Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.
Skólanefnd samþykkir samninginn.

3.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - tillögur skólanefndar

Málsnúmer 2016030022Vakta málsnúmer

Niðurstaða aðgerðarhóps: Magnús Kristjánsson KPMG, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs mættu á fundinn og fóru yfir tillögurnar.

Preben Jón Pétursson vék af fundi kl. 14:30.

4.Málefni framhaldsskólanna

Málsnúmer 2016050204Vakta málsnúmer

Skólanefnd Akureyrarbæjar lýsir þungum áhyggjum af fjármögnun framhaldsskólanna og beinir því til menntamálaráðherra og fjármálaráðherra að bregðast við þeim vanda nú þegar.

Framtíð barnanna okkar er í húfi.

Fundi slitið - kl. 15:00.