Skólanefnd

7. fundur 02. maí 2016 kl. 13:30 - 15:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagný Þóra Baldursdóttir varaformaður
  • Pétur Maack Þorsteinsson
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Logi Már Einarsson S-lista, formaður skólanefndar, var fjarverandi og varaformaður Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista stýrði fundi í hans stað.
Preben Jón Pétursson Æ-lista boðaði forföll og Áshildur Hlín Valtýsdóttir sat fundinn í hans stað.

1.Rekstur fræðslumála 2016

Málsnúmer 2016030017Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála tímabilið janúar-mars 2016.
Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri mætti til fundar kl. 13:50.
Kristín Jóhannesdóttir fulltrúi skólastjóra mætti til fundar kl. 14:00.

2.Skóladagatöl og starfsáætlanir leik- og grunnskóla 2016-2017

Málsnúmer 2016040227Vakta málsnúmer

Starfsáætlanir leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar skólaárið 2016-2017 lagðar fram.
Skólanefnd samþykkir framlögð skóladagatöl leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar fyrir skólaárið 2016-2017

3.Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni - samstarfssamningur 2015

Málsnúmer 2015040043Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur við Aflið lagður fram til kynningar.

Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.
Skólanefnd leggur til að mótaðar verði verklagsreglur um fræðslu- og kynningarheimsóknir í leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar.

4.Bréf frá formanni félags stjórnenda leikskóla vegna aðstoðarleikskólastjóra

Málsnúmer 2016040231Vakta málsnúmer

Bréf dagsett 28. apríl 2016 frá formanni félags stjórnenda leikskóla þar sem vakin er athygli á hvenær aðstoðarleikskólastjóri skuli starfa við leikskóla.

Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir erindið.

5.Sérfræðiþjónusta leikskóla - bréf frá formanni félags stjórnenda leikskóla

Málsnúmer 2016040230Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. apríl 2016 frá formanni félags stjórnenda leikskóla varðandi sérfræðiþjónustu við leikskóla.

Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi kynnti erindið.

6.Viðhaldsáætlun FAK 2016 vegna leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2016040233Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.