Skólanefnd

19. fundur 05. október 2015 kl. 13:30 - 16:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri
Dagskrá

1.Tónlistarskólinn - ýmis mál

Málsnúmer 2012020254Vakta málsnúmer

Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans fór yfir ýmis mál tengd starfsemi skólans.
Skólanefnd þakkar Hjörleifi kærlega fyrir góða kynningu og áhugaverðar hugmyndir um framtíðarsýn tónlistarkennslu á Akureyri.

2.Lóðaframkvæmdir við Naustaskóla

Málsnúmer 2015090266Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. september 2015 frá skólastjóra Naustaskóla, Ágústi Jakobssyni, varðandi lóðaframkvæmdir við Naustaskóla.
Skólanefnd tekur undir áhyggjur skólastjóra og foreldrafélags Naustaskóla um mikilvægi þess að lokið verði við skólalóðina.

Skólanefnd vísar málinu til bæjarráðs og leggur ríka áherslu á að lokið verði við framkvæmdir og frágang skólalóðarinnar fyrir skólabyrjun haustið 2016.

3.Rekstur fræðslumála 2015

Málsnúmer 2015040087Vakta málsnúmer

Rekstur fræðslumála janúar - ágúst 2015.

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðuna.

4.Málþing um læsi á vegum skólaþróunar Háskólans á Akureyri

Málsnúmer 2015090276Vakta málsnúmer

Málþing um læsi haldið á vegum Miðstöðvar skólaþróunar Háskólans á Akureyri laugardaginn 10. október 2015. Dagskrá þingsins lögð fram til kynningar.

5.Ályktun stjórnar Heimilis og skóla um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjakurli

Málsnúmer 2015090284Vakta málsnúmer

Þann 27. september 2015 sendi stjórn Heimilis og skóla frá sér ályktun um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjarkurli.
Fræðslustjóra falið að leita frekari upplýsinga um stöðu valla á Akureyri og fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.

6.Grímseyjarskóli - eftirfylgni með innleiðingu laga nr. 90/2008

Málsnúmer 2015080092Vakta málsnúmer

Fyrirspurn mennta- og menningarmálaráðuneytis frá 15. ágúst 2015 varðandi innleiðingu nýrra grunnskólalaga.

Svarbréf frá Grímseyjarskóla dagsett 11. september 2015 lagt fram til kynningar.

7.Samband íslenskra sveitarfélaga - úttekt á starfi leikskólans Tröllaborgum

Málsnúmer 2012121107Vakta málsnúmer

Svar leikskólans við úttektinni. Framkvæmd og staða í september 2015.
Umbótaáætlun mun verða aðgengileg á heimasíðu leikskólans Tröllaborgar.

8.Leikskólar á Akureyri - eftirfylgni með innleiðingu laga nr. 91/2008 - tvöföld leikskólavist

Málsnúmer 2015080096Vakta málsnúmer

Með bréfi dagsettu 18. ágúst 2015 óskar mennta- og menningarmálaráðuneyti eftir upplýsingum um hvernig brugðist var við beiðni um tvöfalda leikskólavist.
Farið er eftir viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi leikskóladvöl barna utan lögheimilis. Hvert einstakt dæmi er skoðað með hagsmuni barnsins í huga. Fræðslustjóra falið að svara erindinu.

9.Framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2013040005Vakta málsnúmer

Úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum. Unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið í desember 2013. Áætlun frá Akureyrarbæ vegna tillagna um aðgerðir til úrbóta. Staða í september 2015.
Lagt fram til kynningar. Erindi ráðuneytisins um stöðuna í september 2015 hefur verið svarað.

10.Framkvæmdaáætlun 2016-2020

Málsnúmer 2015090294Vakta málsnúmer

Umræða um framkvæmdaþörf vegna fræðslu- og uppeldismála 2016-2020.
Skólanefnd leggur ríka áherslu á eftirfarandi framkvæmdir á tímabilinu 2016-2019:


1. Framkvæmdir við Hlíðarskóla (2016)

2. Skólalóð Naustaskóla (2016)

3. Íþróttahús Naustaskóla (2016)

4. Endurbætur á eldra skólahúsnæði sveitarfélagsins (2017-2019).

5. Að fjármagn verði aukið í almennt og nauðsynlegt viðhald á skólabyggingum sveitarfélagsins (2016-2019)

6. Að bregðast við hugsanlegum endurbótum í samræmi við niðurstöður úttektar á hljóðvist sem nú stendur yfir í leikskólunum Lundarseli, Krógabóli og Naustatjörn (2016-2019).

11.Langtímaáætlun - fræðslumál

Málsnúmer 2013020252Vakta málsnúmer

Umræður um langtímaáætlun í fræðslu- og uppeldismálum - 10 ára áætlun.

12.Móttaka flóttamanna

Málsnúmer 2015090017Vakta málsnúmer

Skipaður hefur verið stýrihópur vegna móttöku flóttamanna til Akureyrar.
Skólanefnd leggur til að Anna María Hjálmarsdóttir verði fulltrúi skólanefndar í stýrihópnum.

13.Tillaga til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs, 16. mál

Málsnúmer 2015090267Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs, 16. mál.

Fundi slitið - kl. 16:15.