Skipulagsráð

251. fundur 18. janúar 2017 kl. 08:00 - 10:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri skipulagssviðs
  • Anna Bragadóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnissstjóri
Dagskrá
Helgi Snæbjarnarson L-lista mætti í forföllum Evu Reykjalín Elvarsdóttur.

1.Skammtímaleiga, þróun gisti og leiguíbúða - samantekt

Málsnúmer 2017010105Vakta málsnúmer

Lögð fram og tekin til umræðu samantekt á þróun gisti- og leiguíbúða til skammtímaleigu í Akureyrarkaupstað.
Umræður. Skipulagsráð telur að í greinargerð aðalskipulags eigi að koma fram upplýsingar um framboð íbúða til skammtímaleigu sem og þróun eignarhalds íbúða á síðustu árum.

2.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október 2016 að senda drög að greinargerð Aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 dagsett 30. september 2016, þéttbýlisuppdrætti dagsett 26. september 2016 og uppdrætti fyrir Hrísey og Grímsey dagsett 29. september 2016 til umsagnar innan bæjarkerfisins. Skipulagsráð frestaði málinu á fundi 11. janúar 2017.

Sviðsstjóri skipulagssviðs lagði fram samantekt á innkomnum umsögnum/athugasemdum og tillögur að afgreiðslu þeirra.

Einnig voru lögð fram drög að umhverfisskýrslu Aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 ódagsett.
Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs að gera lagfæringar á greinargerð, þéttbýlisuppdrætti og sveitarfélagsuppdrætti í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 10:50.