Skipulagsnefnd

187. fundur 10. september 2014 kl. 08:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Vilberg Helgason
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnisstjóri
Dagskrá
Vilberg Helgason V-lista mætti í forföllum Edwards H. Huijbens.

1.Fiskitangi 4 - breyting á deiliskipulagi vegna niðurrifs bragga

Málsnúmer 2014070148Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi "Hafnarsvæða sunnan Glerár" í samræmi við bókun nefndarinnar 30. júlí sl. Breytingartillagan gerir ráð fyrir niðurrifi á tveimur bröggum á lóðinni nr. 4 við Fiskitanga, matsnúmer 214-9755 og 214-9759. Tillagan er unnin af Fanneyju Hauksdóttur arkitekt hjá AVH teiknistofu ehf., dagsett 1. september 2014.
Í umsögn Norðurorku, dagsettri 4. september 2014, kemur fram að Norðurorka eigi dreifistöð við braggana. Finna þarf lausn þannig að dreifistöðin verði í útkanti nýbyggingarinnar við opna umferð eða þá að eldri stöð við Hafnarhús verði stækkuð. Einnig er möguleiki á að stöðin verði á núverandi stað ef aðkoma verður tryggð.

Einungis er um að ræða niðurrif á tveimur bröggum þar sem fyrir liggur jákvæð umsögn Minjastofnunar um niðurrifið og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Norðurorku um að fundin skuli lausn á málefni spennistöðvar, sem er innan lóðar ÚA, áður en hafnar verði breytingar á mannvirkjum. 

2.Flatasíða 6 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014070149Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2014 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Guðlaugs Óla Þorlákssonar sækir um leyfi fyrir viðbyggingu við Flatasíðu 6. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Tillagan var grenndarkynnt frá 7. ágúst til 4. september 2014. Engar athugasemdir bárust.
Innkomin samþykki dagsett 28. ágúst 2014 frá Magnúsi Kristjánssyni og Maríu H. Tryggvadóttur, Flatasíðu 5, og frá Gunnari Kristinssyni dagsett 8. ágúst 2014.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

3.Breiðholt, hesthúsahverfi - Perlugata 7, deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2014090036Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. september 2014 frá Hjalta Jóni Sveinssyni þar sem hann sækir um breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins Breiðholts. Um er að ræða stækkun á byggingarreit um tvo metra til norðurs.
Meðfylgjandi er tillaga að deiliskipulagsbreytingu dagsett 8. september 2014, sem er í samræmi við ofangreint og unnin af Landslagi ehf.

Einungis er um að ræða stækkun á byggingarreit um tvo metra innan lóðar og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Nýtingarhlutfall lóðarinnar helst óbreytt.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Fagrasíða 1a, b, og c, - beiðni um kostnaðarþátttöku við gerð skjólveggja

Málsnúmer 2014080140Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. ágúst 2014 þar sem Heimir Eggerz f.h. Fögrusíðu 1 húsfélags sækir um styrk vegna gerðar skjólveggja við Fögrusíðu 1a, b, og c, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Verkfræðistofan EFLA vinnur nú að gerð hljóðkorts fyrir Akureyri en þar mun koma fram hvort aðgerða er þörf vegna hugsanlegra hljóðvistarvandamála. Þar sem þeirri vinnu er ekki lokið er ekki hægt að segja til um hvort aðgerða vegna hljóðvistar er þörf við Austursíðu sem kallar á kostnaðarþátttöku bæjarins.
Að öðru leyti er erindinu vísað til afgreiðslu skipulagsstjóra varðandi aðra þætti erindisins.

5.Hálönd - götuheiti

Málsnúmer 2014090055Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2014 þar sem Halldór Jóhannsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, óskar eftir samþykki skipulagsnefndar fyrir meðfylgjandi tillögu að götunöfnum í 2. skipulagsáfanga í Hálöndum.
Samþykki nafnanefndar fyrir tillögunni liggur fyrir.

Skipulagsnefnd frestar erindinu.

6.Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - tilnefning fulltrúa

Málsnúmer 2014090020Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn hefur óskað eftir við skipulagsnefnd að tilnefna fulltrúa í samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra kjörtímabilið 2014 til 2018.

Skipulagsnefnd frestar erindinu.

7.Daggarlundur 7 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014090023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um lóð nr. 7 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

8.Daggarlundur 9 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014090024Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um lóð nr. 9 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

9.Daggarlundur 11 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014090025Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um lóð nr. 11 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

10.Daggarlundur 13 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014090026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um lóð nr. 13 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting viðskiptabanka.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

11.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 28. ágúst 2014. Lögð var fram fundargerð 506. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 6 liðum.

Lagt fram til kynningar.

12.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 5. september 2014. Lögð var fram fundargerð 507. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 14 liðum.

Lagt fram til kynningar.

13.Grímseyjargata 2 og 2a - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2014070035Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. júní 2014 þar sem Hjalti H. Hjaltason f.h. Sláturfélags Suðurlands svf., kt. 600269-2089, sækir um lóðirnar við Grímseyjargötu 2 og 2a og að þær verði sameinaðar í eina lóð. Meðfylgjandi er jákvæð umsögn frá Hafnasamlagi Norðurlands.

Tekin hefur verið ákvörðun um að hætta við úthlutun lóða við Grímseyjargötu 2-2a til óákveðins tíma þar sem talsverð umræða og áherslubreyting hefur orðið innan núverandi meirihluta eftir sveitarstjórnarkosningar um heildarsýn fyrir þetta svæði. Umferð ferðamanna er mikil um svæðið vegna komu skemmtiferðaskipa en sú umferð fer m.a. um Gránufélagsgötu sem önnur lóðin liggur að. Gránufélagsgata er ein af elstu götum bæjarins og mun væntanlega verða ein aðaltenging miðbæjarins við umrætt svæði í framtíðinni. Skipulagsnefnd getur því ekki orðið við erindinu en bendir á aðrar lóðir fyrir fyrirhugaða starfsemi.

14.Grímseyjargata 2 og 2a - umsókn um lóðir

Málsnúmer 2014070121Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. júlí 2014 þar sem Eiður Gunnlaugsson f.h. Miðpunkts ehf., kt. 570293-2919, sækir um lóðirnar við Grímseyjargötu 2 og 2a og að þær verði sameinaðar lóð Norðlenska sem Miðpunktur ehf hefur til umráða.
Innkomin staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka.
Eiður Gunnlaugsson og Gunnlaugur Eiðsson f.h. Miðpunkts mættu á fundinn og kynntu hugmyndir félagsins um breytta uppbyggingu svæðisins.

Tekin hefur verið ákvörðun um að hætta við úthlutun lóða við Grímseyjargötu 2-2a til óákveðins tíma þar sem talsverð umræða og áherslubreyting hefur orðið innan núverandi meirihluta eftir sveitarstjórnarkosningar um heildarsýn fyrir þetta svæði. Umferð ferðamanna er mikil um svæðið vegna komu skemmtiferðaskipa en sú umferð fer m.a. um Gránufélagsgötu sem önnur lóðin liggur að. Gránufélagsgata er ein af elstu götum bæjarins og mun væntanlega verða ein aðaltenging miðbæjarins við umrætt svæði í framtíðinni. Skipulagsnefnd getur því ekki orðið við erindinu.

Fundi slitið - kl. 11:00.