Skipulagsnefnd

232. fundur 18. maí 2016 kl. 08:00 - 10:04 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Hólmgeir Þorsteinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Anna Bragadóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá
Hólmgeir Þorsteinsson áheyrnarfulltrúi Æ-lista mætti í forföllum Jón Þorvaldar Heiðarssonar.
Helgi Snæbjarnarson L-lista boðaði forföll.

1.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Kynntar niðurstöður vinnufundar um aðalskipulagið með íbúum sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Unnið var með styrkleika og veikleika einstakra hverfa og bæjarins í heild hvað varðar byggð, atvinnulíf, umhverfi, þjónustu, samgöngur og samfélag.

Farið yfir drög að greinargerð aðalskipulagsins.

Kafli 2 Skipulagstillaga: Farið var yfir ákvæði landnotkunarflokka þ.e. efnistöku- og efnislosunarsvæði, frístundabyggð, afþreyingar- og ferðamannasvæði, íþróttasvæði, kirkjugarða og grafreiti, skógræktar- og landgræðslusvæði, opin svæði, óbyggð svæði, vötn, ár og sjó, strandsvæði, vatnsbólasvæði, varúðarsvæði og landbúnaðarsvæði, minjavernd, friðlýst svæði, hverfisverndarsvæði, vegir, götur og stígar og veitur.

Kafli 3 Forsendur: Farið var yfir kafla 3.5.3 Landslag og náttúrufar:, m.a. loftgæði, vatnsgæði og mengun og náttúruvá.

Rætt um kafla um Hrísey og Grímsey og stöðu þeirra í aðalskipulaginu.
Umræður. Frestað.

Fundi slitið - kl. 10:04.