Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

3. fundur 04. maí 2015 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Jón Heiðar Jónsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Lilja Guðmundsdóttir
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá
Jón Heiðar Daðason fulltrúi Blindrafélagsins mætti ekki á fundinn og ekki heldur varamaður hans.

1.Skólastígur 4 - sundlaug - umsókn um breytingar utanhúss

Málsnúmer 2015040158Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. apríl 2015 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar utanhúss á sundlaugarmannvirkjum við Skólastíg 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra óskar eftir að eftirtalin atriði verði skoðuð betur:

1. Gert verði ráð fyrir lyftumöguleika við alla potta og laugar.
2. Laga handrið við nýjan pott.
3. Kaldur pottur.
4. Athuga möguleika á aðgengi hreyfihamlaðra að barnarennibraut.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra felur formanni nefndarinnar og fulltrúa Fasteigna Akureyrarbæjar að fylgja þessu eftir.

Fundi slitið - kl. 14:00.