Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

2. fundur 31. maí 2011 kl. 13:00 - 14:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Bergur Þorri Benjamínsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Jón Heiðar Jónsson
  • Lilja Guðmundsdóttir
Dagskrá

1.Sjálfsbjörg Akureyri - aðkoma að verkefnahópum vegna framkvæmda í sveitarfélaginu

Málsnúmer 2011050042Vakta málsnúmer

Tekin fyrir afgreiðsla stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar frá 27. maí 2011 á erindi Sjálfsbjargar dags. 6. maí 2011 þar sem stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vill benda á að samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra fer með þessi mál fyrir sveitarfélagið og getur því ekki orðið við erindinu.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra tekur afgreiðslu stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar þannig að nefndinni sé ætlað það hlutverk að sjá til þess að aðgengi verði tryggt og sér ekkert því til fyrirstöðu að fara yfir frumteikningar af nýbyggingum sveitarfélagsins, eins og hefur verið gert í raun, t.d í tilfelli 2. áfanga Naustaskóla. Þar var upphaflegum teikningum breytt mikið eftir yfirferð nokkurra nefndarmanna. Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra mun fylgja málinu eftir.

2.Aðgengi fyrir fatlaða - ábendingar

Málsnúmer 2010020107Vakta málsnúmer

Ábending um slæmt aðgengi að Plastiðjunni Bjargi.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra samþykkir að skrifa bréf til húseigenda og óska eftir úrbótum.

3.gottadgengi.is

Málsnúmer 2011050147Vakta málsnúmer

Kynning á vefnum gottadgengi.is og hugsanlegt samstarf um úttektir á fasteignum sveitarfélagsins.

Samþykkt að leggja til við bæjarráð að gert verði ráð fyrir sérstökum lið í fjárhagsáætlun til að taka út aðgengi að byggingum sveitarfélagsins með það að markmiði að koma fleiri byggingum inn í aðgengismerkjakerfi gottadgengi.is.

Fundi slitið - kl. 14:00.