Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

3. fundur 28. október 2010 kl. 13:00 - 14:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson varaformaður
  • Jón Heiðar Jónsson
  • Lilja Guðmundsdóttir
  • Jón Heiðar Daðason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Leifur Kristján Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Þingvallastræti 23 -hótel

Málsnúmer 2010100146Vakta málsnúmer

Lögð var fram til umsagnar tillaga dags. 27.10.2010 að breytingu á Þingvallastræti 23. Gert er ráð fyrir að byggja við húsið og breyta því í hótel. Tillagan er unnin af Fanneyju Hauksdóttur.
Fanney mætti á fundinn og kynnti tillöguna.

Nefndin þakkar Fanneyju góða kynningu og fagnar þeim aðgerðum sem á að gera gagnvart aðgengi fatlaðra að og í byggingunni og samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti. Við framkvæmd breytinganna verði vel hugað að öðrum þeim atriðum varðandi aðgengismál fatlaðra sem ekki koma fram á aðalteikningum og að gerðar verði deilimyndir af ýmsum útfærslum sem varða aðgengi fatlaðra, sjóndapra og heyrnarskertra.

Fundi slitið - kl. 14:00.