Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

3. fundur 21. nóvember 2016 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Jón Heiðar Jónsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Heiðar Daðason
  • Lilja Guðmundsdóttir
  • Tryggvi Már Ingvarsson
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Kaupvangsstræti 10-12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080127Vakta málsnúmer

Lagt var fram til yfirferðar erindi dagsett 31. ágúst 2016 þar sem Steinþór Kári Kárason f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um viðbyggingu og breytingar á húsum nr. 8-12 við Kaupvangsstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinþór Kára Kárason.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra gerir athugasemdir við teikningarnar og fer fram á að eftirfarandi atriði verði tekin til frekari skoðunar og lagfæringa:

Greinargerð um algilda hönnun á teikningar - hreyfihamlaðir, sjónskertir, aldraðir o.fl.

Gera þarf betri grein fyrir bílastæði fatlaðra - hæðarmunur, halli.

Yfirfara gangabreiddir - 1,5 m.

Yfirfara þarf rými í göngum við hurðir, til hliðar við hurðir og utan við flóttaleiðir.

Gera þarf grein fyrir öruggum svæðum fyrir hjólastóla.

Leiðarlistar á opnum svæðum - sýningarsalir.

2.Viðurkenning samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra 2016

Málsnúmer 2016110093Vakta málsnúmer

Val á húsnæði til viðurkenningar á góðu eða bættu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.

Umræður urðu um staði sem til greina koma til viðurkenningar.
Tillaga nefndar samþykkt og formanni falið að vinna málið áfram.

Viðurkenning verður veitt á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember nk.

Fundi slitið - kl. 14:30.