Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

1. fundur 07. febrúar 2023 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir formaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Sif Sigurðardóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Lilja Björg Jónsdóttir varafulltrúi grófarinnar
  • Herdís Ingvadóttir varafulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir fundarritari
  • Guðrún Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Guðrún Guðmundsdóttir þjónustustjóri
Dagskrá

1.Verkefnið Römpum upp Ísland

Málsnúmer 2022031319Vakta málsnúmer

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds mætti á fundinn og sagði frá stöðunni á verkefninu.
Þakkað fyrir góða kynningu og áhugaverða yfirferð á verkefninu römpum upp Ísland. Áhugi er fyrir því að fá Steindór á fundi reglulega til að fara yfir aðgengismál.

2.Innleiðing á nýrri þjónustu við foreldra

Málsnúmer 2023010027Vakta málsnúmer

Innleiðing á nýrri þjónustu við foreldra sem eiga í erfiðleikum með uppeldi barna sinna.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður á velferðarsviði kynnti þjónustuna.
Þakkað fyrir góða og áhugaverða kynningu.

3.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. janúar 2023 um stöðu verkefna tengt greiningu á rekstri og stjórnsýslu í málaflokki fatlaðs fólks 2021.

Guðrún Guðmundsdóttir starfandi þjónustustjóri greindi frá stöðu mála.

4.Biðlisti eftir þjónustukjarna fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2023011183Vakta málsnúmer

Guðrún Guðmundsdóttir starfandi þjónustustjóri kynnti stöðu á biðlista eftir sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk.

Sif Sigurðardóttir kom með eftirfarandi bókun frá Þroskahjálp:

Þroskahjálp á Norðurlandi eystra krefst svara frá Akureyrarbæ um stöðu biðlista, hvernig og hvenær verður unnt að koma þeim einstaklingum að sem bíða á biðlista eftir sértæku húsnæði. Einnig höfum við þungar áhyggjur af því að þjónusta við þessa einstakling verði skert þegar í búsetu verður komið, sérstaklega ef stefna bæjarins er að auka framboð á íbúðum í gegnum leigufélög á kostnað þess að byggja sérhæfða þjónustukjarna.

Fundi slitið - kl. 17:30.