Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

7. fundur 22. nóvember 2022 kl. 16:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir formaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir
  • Sif Sigurðardóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Friðrik Sighvatur Einarsson fulltrúi grófarinnar
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir fundarritari
  • Guðrún Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri
Dagskrá

1.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - almennt 2022-2026

Málsnúmer 2022080890Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum að innilaug Sundlaugar Akureyrar, samráðshópur er beðinn um álit vegna aðgengismála.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið og kynnti málið.
Samráðshópur þakkar Kristjáni fyrir góða kynningu og samþykkir tillögu nr. 2 í drögum að breytingum að innilaug Sundlaugar Akureyrar.

2.Búsetuteymi - umfjöllun mála - biðlisti

Málsnúmer 2020010284Vakta málsnúmer

Búsetumál og biðlisti tekin til umræðu.
Ljóst er að veruleg seinkun hefur orðið á uppbyggingu í húsnæðismálum fyrir fatlað fólk sé litið til skýrslu um framtíðaruppbyggingu í málaflokki fatlaðra frá júní 2021. Samráðshópur lýsir yfir áhyggjum af stöðu biðlista sem upp er kominn varðandi búsetuúrræði fatlaðs fólks og hvetur til þess að gripið verði til fjölbreyttari aðgerða í húsnæðismálum.

Fundi slitið - kl. 17:00.