Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

5. fundur 27. september 2022 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir
  • Sif Sigurðardóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Friðrik Sighvatur Einarsson fulltrúi grófarinnar
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir fundarritari
  • Guðrún Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri
Dagskrá
Hildur Brynjarsdóttir D-lista sat fundinn í forföllum Þórhalls Harðarsonar.

1.Kynning Vinnumálastofnunar á atvinnu með stuðningi

Málsnúmer 2022090758Vakta málsnúmer

Kynning á atvinnu með stuðningi.

Ellen Jónína Sæmundsdóttir og Ásrún Ásmundsdóttir frá Vinnumálastofnun sáu um kynninguna.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks þakkar kynninguna.

2.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - almennt 2022-2026

Málsnúmer 2022080890Vakta málsnúmer

Farið yfir hlutverk Samráðshóps um málefni fatlaðs fólk skv. samþykkt fyrir hópinn frá 2019 og samþykkt var í bæjarstjórn.

Rætt um málefni sem fundarmenn hafa áhuga á að taka fyrir á næstu fundum.

3.Verkefnið Römpum upp Ísland

Málsnúmer 2022031319Vakta málsnúmer

Málfríður Þórðardóttir F-lista lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

Erindi frá Óskari Þór Þorleifssyni fyrir hönd stjórnar "Römpum upp Ísland" var tekið fyrir á bæjarráðsfundi 7. apríl sl. og var bæjarstjóra falið að afla nánari upplýsinga um verkefnið. Óskað er eftir því að fá upplýsingar um það hvort Akureyrarbær muni taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og hvort nú þegar einhverjir rampar hafi verið teknir í notkun og vígðir á Akureyri. Flokkur fólksins telur það mikilvægt að Akureyrarbær sé sýnilegur og fyrirmynd fyrir önnur bæjarfélög þegar kemur að því að bæta aðgengi fatlaðra að allri þjónustu í bænum.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks tekur undir að þetta verkefni er mjög mikilvægt og skorar á Akureyrarbæ að hefja framkvæmdir hið fyrsta.

Fundi slitið - kl. 17:30.