Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

14. fundur 26. janúar 2021 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Valdís Anna Jónsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Sigrún María Óskarsdóttir
  • Vera K Vestmann Kristjánsdóttir fulltrúi þroskahjálpar ne
  • Friðrik Sighvatur Einarsson fulltrúi grófarinnar
  • Elmar Logi Heiðarsson fulltrúi sjálfsbjargar
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri
Fundargerð ritaði: Karólína Gunnarsdóttir
Dagskrá

1.Notendaráð fatlaðs fólks - beiðni um umsögn vegna starfsleyfis NPA umsýsluaðila

Málsnúmer 2021011442Vakta málsnúmer

Samráðshópi um málefni fatlaðs fólks er boðið að senda umsögn vegna umsóknar Rögnu Hrundar Hjartardóttur /Þórhildar Sverrisdóttur f.h. NPA umsýsluaðila, félagasamtaka um starfsleyfi til að annast umsýslu vegna samninga sem gerðir eru vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Samráðshópurinn lýsir yfir ánægju sinni með að kominn sé aðili á norðurlandi sem er tilbúinn til að vinna með NPA notendum við umsýslu samninga og mælir með að veitt verði starfsleyfi til viðkomandi.

2.Frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, 354. mál

Málsnúmer 2020120471Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um samþættingu þjónustu í þágu velsældar barna og umsögn Akureyrarbæjar um frumvarpið.
Samráðshópurinn þakkar kynninguna og tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Akureyrarbæjar.

3.Frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, 356. mál

Málsnúmer 2020120473Vakta málsnúmer

Laaft fram til kynningar frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og umsögn frá Akureyrarbæ um frumvarpið.
Samráðshópurinn þakkar kynninguna og tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Akureyrarbæjar.

4.Frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu, 355. mál

Málsnúmer 2020120472Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um Barna- og fjölskyldustofu og umsögn frá Akureyrarbæ um frumvarpið.
Samráðshópurinn þakkar kynninguna og tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 17:30.