Samfélags- og mannréttindaráð

135. fundur 06. nóvember 2013 kl. 17:00 - 18:40 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Body Project - kynning á verkefni

Málsnúmer 2013040220Vakta málsnúmer

Í apríl sl. ákvað samfélags- og mannréttindaráð að veita styrk til námskeiðs fyrir unglingsstúlkur um sjálfs- og líkamsmynd. Brynhildur Smáradóttir, Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir og Steinunn Jónsdóttir kynntu námskeiðið.
Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar kynninguna.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:18.

2.Fjárhagsáætlun 2014 - samfélags- og mannréttindamál

Málsnúmer 2013060166Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð tekin fyrir að nýju m.t.t. hagræðingar.
Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála sat fundinn undir þessum lið.

3.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Samkvæmt Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar skulu allar nefndir á vegum bæjarins vinna tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhagsáætlanagerð.
Tilraunaverkefni samfélags- og mannréttindaráðs um úttekt á handverksmiðstöðinni Punktinum var lögð fram til kynningar.

4.Styrkveitingar samfélags- og mannréttindaráðs

Málsnúmer 2010110089Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við samning við KFUM og KFUK sem samþykktur var í samfélags- og mannréttindaráði í desember 2012.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir viðaukann.

5.Þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti - dagur gegn einelti 8. nóvember

Málsnúmer 2011100100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 16. október 2013 frá mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem vakin er athygli á degi gegn einelti 8. nóvember og fólk hvatt til að undirrita þjóðarsáttmála á heimasíðunni www.gegneinelti.is. Einnig er hvatt til þess að bjöllum, klukkum og skipsflautum verði hringt frá kl. 13.00-13.07 þennan dag.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur bæjarbúa til að undirrita þjóðarsáttmálann.

Fundi slitið - kl. 18:40.