Samfélags- og mannréttindaráð

134. fundur 16. október 2013 kl. 17:00 - 18:50 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Heiða Hlín Björnsdóttir og Rubina Singh Arnoddsdóttir fulltrúar úr ungmennaráði Akureyrarbæjar voru gestir fundarins.

1.Ungmennaráð

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Fulltrúar úr ungmennaráði fóru yfir það helsta í starfsemi ráðsins að undanförnu og það sem framundan er.

2.Þróun vímuefnaneyslu ungmenna á Íslandi 1997-2013

Málsnúmer 2013100126Vakta málsnúmer

Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi kynnti skýrslur frá Rannsóknum og greiningu um þróun vímuefnanotkunar unglinga í efstu bekkjum grunnskóla á Íslandi á árunum 1997-2013 og samanburð mælinga á vímuefnanotkun framhaldsskólanema á Íslandi 2000-2013.
Regína Helgadóttir B-lista vék af fundi kl. 17:50.

3.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs yfirfarin og endurskoðuð.

4.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015

Málsnúmer 2011100052Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt um stöðu verkefna í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.

5.MFÍK - umsókn um styrk vegna ritunar og útgáfu sögu félagsins

Málsnúmer 2013100053Vakta málsnúmer

Erindi dags. 3. október 2013 frá Auði Alfífu Ketilsdóttur og Sigurlaugu Gunnlaugsdóttur f.h. Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK þar sem óskað er eftir styrk vegna ritunar sögu MFÍK.

Samfélags- og mannréttindaráð getur ekki orðið við erindinu.

Fundi slitið - kl. 18:50.