Samfélags- og mannréttindaráð

130. fundur 21. ágúst 2013 kl. 17:00 - 18:45 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alfa Aradóttir
  • Bergljót Jónasdóttir
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Punkturinn - gjaldskrá 2013

Málsnúmer 2013080107Vakta málsnúmer

Ræddar voru hugmyndir um gjaldtöku á Punktinum.

2.Tómstundastarf fullorðinna - stefnumótun 2013

Málsnúmer 2013080108Vakta málsnúmer

Umræður um framtíðarskipan þeirra tómstundatilboða sem Akureyrarbær býður fullorðnum einstaklingum upp á. Í samstarfi við félagsmálaráð var lögð fram tillaga um stofnun vinnuhóps sem hefði það hlutverk að fara yfir tómstundatilboðin og gera tillögur að framtíðar fyrirkomulagi.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að skipa vinnuhóp og óskar eftir tilnefningum frá félagsmálaráði, notendaráði félagsmiðstöðva eldri borgara og búsetudeild. Regína Helgadóttir verður fulltrúi samfélags- og mannréttindaráðs.

3.Ungmenna-Hús 2012

Málsnúmer 2012050032Vakta málsnúmer

Teknar fyrir að nýju tillögur vinnuhóps um mótun framtíðarsýnar fyrir Ungmenna-Húsið.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir tillögur vinnuhópsins.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:30.

4.Samfélags- og mannréttindadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030344Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við gerð langtímaáætlunar fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.

5.Landsfundur jafnréttisnefnda 2013

Málsnúmer 2013060170Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um að landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verði haldinn á Hvolsvelli 27. september nk.

Fundi slitið - kl. 18:45.