Samfélags- og mannréttindaráð

118. fundur 12. desember 2012 kl. 17:00 - 19:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Katrín Björg Ríkarðsdóttir katrinb@akureyri.is
Dagskrá
Guðlaug Kristinsdóttir B-lista mætti í forföllum Regínu Helgadóttur og Jóhann Gunnar Sigmarsson A-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.

1.Að auka efnahagslega virkni og félagslega þátttöku

Málsnúmer 2012100101Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um umsókn um IPA-styrk til að þróa leiðir til að auka efnahagslega virkni og félagslega þátttöku. Verkefnið beinist að 18-40 ára einstaklingum sem hafa orðið fyrir mestum áhrifum af atvinnuleysi í kjölfar efnahagshrunsins.
Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála og Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild sátu fundinn undir þessum lið.
María H. Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi D-lista mætti til fundar kl. 17:05.

2.Stefnumótun í æskulýðsmálum

Málsnúmer 2012121145Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála kynnti drög að stefnumótun í æskulýðsmálum sem fram fer á vegum Æskulýðsráðs ríkisins.

3.Kvennasmiðja - samningur við Starfsendurhæfingu Norðurlands

Málsnúmer 2008080086Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu samnings við Starfsendurhæfingu Norðurlands um rekstur kvennasmiðju.

4.Styrkveitingar samfélags- og mannréttindaráðs

Málsnúmer 2010110089Vakta málsnúmer

Lagðir fram samningar við Áhugaljósmyndaklúbb Akureyrar, KFUM og KFUK, Skákfélag Akureyrar og Skátafélagið Klakk.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir samningana.

5.Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar

Málsnúmer 2012090258Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um veitingu viðurkenninga til þeirra sem skara fram úr í æskulýðs- og tómstundastarfi.

6.Ungt fólk - æskulýðsrannsóknir 2011-2016

Málsnúmer 2011010132Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju tillaga frá Rannsóknum og greiningu ehf um samstarf um úrvinnslu rannsókna á högum og líðan ungs fólks á Akureyri. Málið var áður á dagskrá 17. október sl.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Rannsóknum og greiningu ehf fyrir tillöguna en hefur ekki tök á að samþykkja hana.

7.Hjólabrettafélag Akureyrar

Málsnúmer 2012110124Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 22. nóvember 2012 vísaði bæjarráð 6. lið í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 15. nóvember 2012 til samfélags- og mannréttindaráðs:
Ingibjörg Stefánsdóttir hringdi í viðtalstíma bæjarfulltrúa og lýsti áhyggjum sínum sem fulltrúi Hjólabrettafélags Akureyrar yfir húsnæðisvanda félagsins. Hún spurði hvort ekki sé vilji innan Akureyrarbæjar að reyna að leysa vanda félagsins.

Samfélags- og mannréttindaráð vekur athygli á því að íþróttaráð hefur á árinu styrkt félagið um tæplega kr. 800.000 auk þess sem samfélags- og mannréttindaráð hefur lagt félaginu til starfsmann hluta úr árinu. Ráðið óskar eftir formlegra samstarfi við íþróttaráð og Hjólabrettafélag Akureyrar um framtíðarlausn á málefnum félagsins og tilnefnir Hlín Bolladóttur í samstarfshóp. Óskað er eftir tilnefningum frá íþróttaráði og Hjólabrettafélaginu.

8.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar frá 30. nóvember 2012.

Fundi slitið - kl. 19:00.