Samfélags- og mannréttindaráð

117. fundur 28. nóvember 2012 kl. 17:00 - 19:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Winter without limits - IPA umsókn 2012

Málsnúmer 2012110074Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um umsókn um IPA-styrk til að móta enn betur vetrarstarf með fötluðum á Akureyri.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls og framkvæmdastjóri Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands sat fundinn undir þessum lið.

2.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - staðalímyndir kynjanna

Málsnúmer 2011100052Vakta málsnúmer

Arnfríður Aðalsteinsdóttir verkefnastjóri kynnti stöðu verkefnis um jafnrétti kynjanna og staðalímyndir sem unnið er með grunnskólum bæjarins.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur grunnskólana til að nýta þá aðstoð sem er í boði við innleiðingu jafnréttisstarfs.

Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista mætti til fundar kl. 17:50.

3.Forvarnamál - 2012-2013

Málsnúmer 2012040062Vakta málsnúmer

Umræða um forvarnir og jafnréttismál í framhaldsskólunum. Gestir fundarins voru Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri og Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri.

Samfélags- og mannréttindaráð býður framhaldsskólum bæjarins til samstarfs í vinnuhópi um endurskilgreiningu á forvörnum sem þeir og þáðu. Það er enn einn liðurinn í að efla samtakamátt í samfélaginu. Það er markmið samfélags- og mannréttindaráðs á Akureyri að vera leiðandi í forvörnum.

Guðlaug Kristinsdóttir B-lista vék af fundi kl. 18:30.

4.16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2012

Málsnúmer 2012090256Vakta málsnúmer

Dagana 25. nóvember til 10. desember tekur samfélags- og mannréttindaráð ásamt fleirum þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift átaksins er "heimilisfriður - heimsfriður".

Fundi slitið - kl. 19:00.